Áskorun um fjárhagsstuðning við Ungmennafélag Grindavíkur
Ungmennafélögin á Suðurnesjum hafa sent frá sér áskorun á stjórnir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og sérsambönd innan ÍSÍ að styðja fjárhagslega við Ungmennafélag Grindarvíkur vegna þeirra hörmunga sem Grindavík er að ganga í gegnum.
„Það ætti öllum að vera ljóst að þær hörmungar sem eina sér stað í Grindavík kemur verulega við starfið hjá Ungmennafélagi Grindavikur. Tekjugrundvöllurinn er brostinn, þar sem þau fyrirtæki í Grindavik sem hafa stutt vel við íþróttastarfið eru væntanlega ekki lengur til staðar eða aflögufær að standa við gerða samninga. Útgjöldin eru enn til staðar og þurfa þeir að standa skil á launum og launatengdum gjöldum ásamt öðrum rekstrarkostnaði,“ segir m.a. í áskoruninni.