Auka aðgengi að Grindavík
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið í samvinnu við Grindavíkurnefndina að auka aðgengi að Grindavíkurbæ. Hægt er að keyra inn og út úr bænum um Nesveg og Suðurstrandarveg. Lokunarpóstar eru á Grindavíkurvegi nærri gatnamótum Reykjanesbrautar (óbreytt staða). Þá er lokunarpóstur á Grindavíkurvegi við gatnamót Nesvegar. Vegna framkvæmda við varnargarða og þá miklu umferð þungra vinnuvéla inn í Svartsengi þykir nauðsynlegt að takmarka þar alla almenna umferð. Sjá meðfylgjandi kort.
Veðurstofa Íslands uppfærir sitt hættumat síðar í dag. Í kjölfar á birtingu þess hættumats mun lögreglustjóri jafnframt senda út nýja fréttatilkynningu.