Blóðsykursmælingar í Vogum og Reykjanesbæ
Í tilefni af árlegu landsátaki Lionshreyfingarinnar í vitundarvakningu um sykursýki bjóða Lionsklúbbar á Suðurnesjum upp á ókeypis blóðsykursmælingar í Álftagerði í Vogum, fimmtudaginn 14. nóvember frá kl. 14–15 og í sundlauginni í Vogum frá 17–19.
Boðið verður upp á mælingu í Krossmóa Reykjanesbæ föstudaginn 15. nóvember frá kl. 13 til 16 í samstarfi við HSS.