Fimmtudagur 14. nóvember 2024 kl. 07:35
Brattir Miðflokksmenn á ferðinni
„Við erum brött í Miðflokknum og stefnum að því að ná Ólafi okkar Ísleifssyni inn,“ sagði Karl Gauti Hjaltason, oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi þegar hann og Ólafur sem er í 3. sæti flokksins í kjördæminu litu við á skrifstofu Víkurfrétta nýlega. Útlendingamál og efnahagsmál voru þeim og fólki sem þeir höfðu hitt hugleikin. Þeir voru brattir og sögðust fá góðar viðtökur þar sem þeir væru á ferðinni.