Óperugala Norðuróps
Óperugala Norðuróps

Fréttir

Minningarathöfn fórnarlamba umferðarslysa
Fimmtudagur 14. nóvember 2024 kl. 12:48

Minningarathöfn fórnarlamba umferðarslysa

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn 17. nóvember og verður komið saman af því tilefni framan við Keflavíkurkirkju kl. 14:00 til að minnast þeirra sem hafa látist í umferðinni.

Minningarathafnir verða haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni og þar verður fórnarlamba umferðaslysa minnst með einnar mínútu þögn.

Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum kl. 14 á minningardaginn.

Í ár verður kastljósi dagsins beint að hættunni sem getur skapast á að sofna eða dotta undir stýri vegna þreytu ökumanna. Rannsóknir Rannsóknarnefndar samgönguslysa hafa sýnt að svefn og þreyta eru meðal helstu orsaka banaslysa í umferðinni.

Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf.

Hvetjum alla til að koma við og jafnvel hafa með sér kerti til að tendra framan við kirkjuna, segir í tilkynningu frá lögreglu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn