Eiga nú kost á takmörkuðum afnotum af húsum í Grindavík - gisting ekki heimil
Þeir sem hafa selt Þórkötlu hús sín í Grindavík geta nú gert samning um afnot af húsinu, svokallaðan hollvinasamning. Greiða aðeins hita og rafmagn. Gisting næturlangt eða föst búseta er ekki heimil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórkötlu.
Frá og með deginum í dag geta þeir sem selt hafa Þórkötlu hús sín í Grindavík sótt um að gera samning um afnot af húsinu, svokallaðan hollvinasamning. Hollvinasamningur byggir á samstarfi Þórkötlu við seljendur húsa í Grindavík hvað varðar umhirðu, minniháttar viðhald og almennt eftirlit með eignunum. Forsenda er að öruggt sé talið að vera í eigninni og á lóðinni í kring.
Með því að gera hollvinasamning ákveður „hollvinur“ að leigja aðgang að húsinu sem Þórkatla hefur keypt af þeim. Hollvinur hefur þá heimild til þess að nota húsið innan þeirra marka sem koma fram í samningnum en meðal þess er heimild til að geyma lausafé í eigninni og sinna viðhaldi og umhirðu eftir hentugleika. Þannig geta seljendur viðhaldið tengslum sínum við húsið og í raun „gætt þess“. Meðan samningurinn er í gildi er því gengið út frá því að hollvinur heimsæki eignina og sinnir Þórkatla því ekki hefðbundnu eftirliti á meðan, nema hollvinur óski eftir því sérstaklega. Óheimilt að gista eða dvelja í fasteigninni næturlangt og ekki er heimilt að hafa þar fasta búsetu.
Kostnaður við hollvinasamning er tvíþættur. Annars vegar borgar hollvinur mánaðarlegan kostnað af rafmagni og hita á fasteigninni. Hins vegar greiðir hollvinur 30.000 kr. einskiptis umsýslugjald þegar samningurinn er gerður.
Hægt er að sækja um að gera hollvinasamning hér (Hollvinir).