HS Orka
HS Orka

Viðskipti

Kæling ehf og Víkurafl ehf. sameinast
Þriðjudagur 19. nóvember 2024 kl. 09:52

Kæling ehf og Víkurafl ehf. sameinast

Kæling ehf. og Víkurafl ehf. úr Grindavík hafa sameinast og verður fyrst um sinn talað um „Kæling Víkurafl“ í daglegu tali. Heildarfjöldi starfsmanna verður tuttugu og tveir og höfuðstöðvar fyrirtækisins verða í Hafnarfirði. Framkvæmdastjóri er Atli Steinn Jónsson. 

„Við samrunan verður til mjög öflugt þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði hitastýringa og sjálfvirknivæðinga. Fyrirtækið selur áfram staðlaðar og sérhannaðar kæli- og hitastýringalausnir auk sjálstýringa ýmiskonar fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi, fiskeldi, líftækniiðnaði, matvælaframleiðslu og öðrum iðnaði,“ segir í tilkynningu frá nýju sameinuðu fyrirtæki. 

Fyrirtækið mun einnig veita alhliða þjónustu og vöktun þegar kemur að kælibúnaði, kælilausnum og flest öllum rafbúnaði í fyrirtækjum. Fyrirtækið mun einnig sjá um öll rafmagnsmál fyrir viðskiptavini sem þess óska.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Kæling og Víkurafl hafa komið að mörgum sameiginlegum verkefnum í gegnum tíðina um borð í fiskiskipum og hjá sjávarútvegsfyrirtækjum í landi. Samvinna í þessum verkefnum hefur gengið afar vel sem var kveikjan að hugmynd eigenda að sameina félögin. Mikil sérþekking liggur hjá báðum félögum þá einna helst tengt sjávarútvegi en mikill vöxtur og ný þekking hefur myndast hratt hjá báðum félögum við uppsetningar og þjónustu við fiskeldisfyrirtæki. 

Samlegðaráhrif sameiningarinnar eru mikil milli félaganna og ávinningur viðskiptavina verulegur sem nú geta nýtt þá miklu þekkingu, reynslu og getu sem Kæling – Víkurafl býr yfir.  Fyrirtækið er nú í stakk búið til að annast mun stærri og flóknari verkefni en áður. Viðskiptavinir geta náð fram mun hagkvæmari verkefnum og einfaldari samskiptum í tengslum við þau með því að nýta sameinaða krafta Kælingar og Víkurafls.

Framundan er mikil sókn á mörgum sviðum en þó einn helst í tengslum við umhverfisvæn kælikerfi og kælilausnir en Kæling hefur um árabil unnið að þróun umhverfisvænna kælilausna þar sem bæði er hægt að kaupa ný kerfi sem eru alfarið nýta umhverfisvæna kælimiðla eða sá kostur sem getur verið afar hagkvæmt milliskref í hagræðingu og umhverfismálum en það er að láta breyta eldri kerfum þannig að allt að 90% af óumhverfisvænum kælimiðlum er fjarlægð. Í nýjum umhverfisvænum kælikerfum og kælibúnaði er gjarnan notast við C02 sem kælimiðil en einnig eru í boði aðrir umhverfisvænir kælimiðlar, segir í tilkynningunni.