Optical Studio
Optical Studio

Fréttir

Íslandsmótið í golfi heppnaðist fullkomlega
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
þriðjudaginn 23. júlí 2024 kl. 17:41

Íslandsmótið í golfi heppnaðist fullkomlega

„Það gekk allt upp sem þurfti að ganga upp, völlurinn var í frábæru ásigkomulagi, breytingarnar á uppsetningu vallarins mæltust mjög vel fyrir, vallar- og mótsmet voru slegin og síðast en ekki síst var farin hola í höggi,“ segir Birkir Þór Karlsson, vallarstjóri á Hólmsvelli í Leiru, golfvelli Golfklúbbs Suðurnesja (GS) en Íslandsmótið í höggleik, stærsta mót sumarsins, fór fram í síðustu viku.

Upprunalega átti Golfklúbbur Reykjavíkur að halda mótið en klúbburinn baðst undan því og þar með var leitað til GS seint síðasta haust. Fljótlega var tekin ákvörðun um að þekkjast boðið og fór þá allt á fullt í undirbúningi og ákveðið að ráðast í þær framkvæmdir sem höfðu staðið til og áttu að vera búnar áður en Íslandsmótið yrði haldið í Leirunni 2026 eða 2027. Mesta athygli vakti breytt holuröðun en sú hugmyndin fæddist samt ekki þegar ákvörðun var tekin um að halda mótið.

„Það er kannski ótrúlegt að mönnum hafi ekki dottið þessi breyting fyrr í hug, sjálfur hafði ég aldrei spáð í þessu en þegar búið er að framkvæma breytinguna, getur maður ekki annað en hugsað með sér, af hverju var ekki löngu búið að gera þetta? Fyrir þá sem ekki þekkja til, snýst breytingin um að færa erfiðustu holurnar yfir á seinni níu en þetta voru fyrstu holurnar á vellinum. Byrjunin var sérstaklega erfið má segja, par 5 hola með lítið rými hvort sem var til hægri eða vinstri, kylfingar ekki orðnir heitir og oftar en ekki er mótvindur á þessari holu. Eftir hana kemur erfið og blind hola og þar næst svo hin margrómaða Bergvík, ein fallegasta golfhola landsins. Mörgum fannst hálf sorglegt að sú hola væri aldrei í sjónvarpi og þar með var þetta í raun mjög einföld ákvörðun. Fyrsta holan í dag er gamla níunda holan, þægileg byrjunarhola og eina breytingin í raun er að eftir gömlu par 5 holuna sem var númer 14 og er númer sex í dag, kemur önnur par 5 hola, hola sem var númer sex í fyrri uppsetningu. Holur fimmtán til átján halda sér eins og þær voru, það er stutt að fara frá flöt fjórtán sem var flöt númer fimm. Ég tel líka mjög gott að breyta gömlu fyrstu holunni úr par 5 í par 4 og færa teigana framar, þá er enginn í hættu og kylfingar auk þess orðnir heitir þegar kemur að þeirri holu. Allir kylfingar voru himinlifandi með allar þessar breytingar og ljóst að völlurinn verður spilaður svona út þetta sumar og svo mun aðalfundur taka ákvörðun hvort breytingin verði varanleg.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Segja má að allt hafi haldist í hendur til að láta allt ganga fullkomlega upp, veðrið lék við kylfinga fyrstu dagana en veðurguðirnir vildu líka sýna á lokadeginum að Suðurnesjalognið getur líka ferðast á smá hraða. Þar sem ný uppsetning var á vellinum var ljóst að nýtt vallarmet myndi líta dagsins ljós, mótsmet var slegið og síðast en ekki síst lét rúsínan í pylsuendanum sjá sig.

Hola í höggi og met

„Það er búið að vera mikið að gera undanfarnar vikur má segja við að koma vellinum í stand og ekki síst, framkvæma þær breytingar sem búið var að ákveða, t.d. varðandi nýja göngustíga. Við ákváðum að malbika þá og gerir það ásýnd vallarins miklu betri. Malbikunargengið mætti um hádegi einn daginn en þá var of mikil rigning svo þeir komu aftur seinni partinn og þá gekk dæmið upp. Það var mikið álag á okkur síðustu vikur og á sunnudeginum fyrir mótið kallaði ég alla út en þá rigndi eins og hellt væri úr fötu! Spáin sýndi samt fram á góða daga og má segja að veðrið hafi leikið við okkur fyrstu dagana fyrir utan úrhellisskúr á öðrum degi í u.þ.b. klukkustund. Sumir kylfingar höfðu á orði að þeir væru ekki vanir að spila í svona logni í Leirunni, það segir eitthvað. Þessar rigningar að undanförnu, gerðu það að verkum að flatirnar voru mjög mjúkar og því gátu þessir frábæru kylfingar ráðist á pinnann eins og sagt er. Strax á fyrsta degi spiluðu tveir kylfingar á -6 eða 65 höggum, 64 högg sáust næsta dag og Gunnlaugur Árni Sveinsson sló svo það vallarmet á þriðja degi og lék á -8 eða 63 höggum, algerlega frábært. Það var svo Aron Snær Júlíusson sem stóð uppi sem sigurvegari á nýju mótsmeti, eða -14. Rúsínan í pylsuendanum var svo kannski að strax á fyrsta degi og það tiltölulega snemma, fór kylfingur holu í höggi! Einar Bjarni Helgason afrekaði það á níundu holu, gömlu áttundu holunni.

Nú róast aðeins hjá okkur vallarstarfsmönnunum en svo styttist í meistaramót GS, það er líka fjögurra daga mót og verður nóg að gera hjá okkur í kringum það og svo eru frekari framkvæmdir á vellinum fyrirhugaðar eftir golftímabilið. Þá munum við fá gervigras úr Nettóhöllinni en það verður skipt um það í haust, og munum setja það á nokkra staði á Hólmsvelli, þar sem golfbílarnir keyra og líka á að gera nýja göngustíga. Fyrir utan að sjá um Hólmsvöll sláum við líka púttflatirnar við sjúkrahúsið og hirðum líka Ásbrúarvöllinn. Það er nóg að gera hjá okkur og ég myndi segja að framtíð golfs á Suðurnesjunum sé mjög björt,“ sagði Birkir Þór að lokum.

Birkir á nýja göngustígnum sem var malbikaður skömmu fyrir Íslandsmót.