Landhelgisgæslan
Landhelgisgæslan

Fréttir

Safna fyrir heimildamynd um kórferðalag til Dyflinnar
Þriðjudagur 8. apríl 2025 kl. 09:01

Safna fyrir heimildamynd um kórferðalag til Dyflinnar

Kór Keflavíkurkirkju fór með U2 messu til Dublin á Írlandi ásamt hljómsveit og mökum. Sýnt er frá ferlinu fyrir og tónleikum í Dublin í nýrri heimildamynd sem nú er í smíðum. Safnað er fyrir myndinni á hópfjármögnunarsíðunni Karolina Fund.

Áttatíu og þrír ferðafélagar fara fullir vonar til Dublin með U2 messu. Hljómsveit, kór, íslenskur texti. Getur þetta klikkað? Kemur Bono? Fylgst er með vegferð kórsins í öllu ferlinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Við hjá Kór Keflavíkurkirkju erum ekki bara venjulegur kirkjukór. Við förum í allskonar skemmtileg og stórkostleg verkefni sem yfirleitt tengjast kirkjunni eða trúnni. Að þessu sinni erum við að gera heimildamynd um ferðalag okkar til Dublin, Írland með U2 messu. Sumir myndu segja að það sé eins og að fara með kaffi til Gvatemala og það má vel vera en kórinn er stórhuga og mottóið er að það sé ekkert víst að þetta klikki!,“ segir á söfnunarsíðunni þar sem kórfélagar ætla að reyna að næla í dágóða fjárhæð til að fjármagna myndina.

U2 lögin þekkja flestir en meðlimir hljómsveitarinnar eru írskir að uppruna og er Dublin þar sem þeir slitu barnsskónum. Arnór Vilbergsson organisti og stjórnandi kórsins útsetti öll lögin og gerðu kórmeðlimir fallega íslenska texta þar sem upprunaleg meining laganna fékk að halda sér. „Útkoman var stórkostleg! í byrjun árs 2024 var ákveðið að gera heimildamynd um ferðina og ferlið. Tökur eru búnar, hljóðvinnslan er langt komin og búið er að staðfesta frumsýningu í Bíó Paradís í byrjun sumars,“ segir á síðunni.

Viltu hjálpa Kór Keflavíkurkirkju að klára að koma þessari skemmtilegu heimildamynd á koppinn?
Það vantar herslumuninn til að geta klárað að fjármagna myndina en margir hafa komið að fjármögnun eins og sóknin, Þjóðkirkjan, Kjalarnessprófastsdæmi og fjölmörg fyrirtæki á Suðurnesjum. Kvikmyndagerðamenn eru Heiðar og Bjartur Aðalbjörnssynir. Handrit, framleiðsla og verkefnastjórnun er á höndum forsvarsmanna Kórs Keflavíkurkirkju.

Hér er tengill á fjármögnunarsíðuna:
https://www.karolinafund.com/project/view/6403