Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Tafir á Suðurnesjalínu 2 kosta samfélagið marga milljarða á ári
Miðvikudagur 21. desember 2022 kl. 11:13

Tafir á Suðurnesjalínu 2 kosta samfélagið marga milljarða á ári

Tafirnar á framkvæmdinni vekja upp spurningar um rétt hinna sveitarfélaganna sem nú þegar hafa samþykkt framkvæmdina.

Sveitarfélagið Vogar hefur enn ekki afgreitt umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 en skipulagsnefnd sveitarfélagsins frestaði nú í desember afgreiðslu umsóknarinnar fram í janúar 2023. Landsnet lýsir yfir mikilli óánægju með ákvörðun Vogamanna og segir hana ólíðandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti.

Það eru liðin tvö ár síðan að sótt var um framkvæmdaleyfi til Sveitarfélagsins Voga en öll lagaskilyrði fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir Suðurnesjalínu 2 voru þá fyrir hendi og önnur sveitarfélög á línuleiðinni, Grindavíkurbær, Hafnarfjarðarbær og Reykjanesbær, hafa gefið út framkvæmdaleyfi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fyrri afgreiðsla Sveitarfélagsins Voga um höfnun á framkvæmdaleyfi var dæmd ólögleg af Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála í október 2021. Þrátt fyrir það hefur lítið sem ekkert gerst í málinu og biðin eftir auknu raforkuöryggi á Suðurnesjum lengist því enn frekar og svæðið býr áfram við ófullnægjandi afhendingaröryggi rafmagns og takmarkanir á atvinnuþróun.

Suðurnesjalína 2 í lofti er í skipulagsáætlunum Voga og hefur sveitarfélagið samið við Landsnet um bætur vegna línunnar þar sem hún fer yfir land í eigu sveitarfélagsins og tekið við greiðslu. Einnig er búið að semja við og greiða bætur til mikils meirihluta landeigenda á línuleiðinni.

Tafirnar á framkvæmdinni vekja upp spurningar um rétt hinna sveitarfélaganna sem nú þegar hafa samþykkt framkvæmdina. Sverrir Jan Norðfjörð framkvæmdastjóri Þróunar- og tæknisviðs hjá Landsneti segir þetta ólíðandi, aðföng hafi hækkað og kostnaður við undirbúning hleypur á hundruðum milljóna króna.

„Um  fjórðungur fyrirspurna sem Landsnet hefur fengið um orkuafhendingu síðastliðin ár hafa verið vegna nýrra atvinnutækifæra á Suðurnesjum. Í öllum tilvikum var óskum um tengingu hafnað þar sem aðgengi að orku er takmarkað á svæðinu. Þetta ástand leiðir til tapaðra tækifæra fyrir sveitarfélögin til að þróa og byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf. Við höfum áður bent á hversu mikil verðmæti tapast. Í skýrslu Frontier Economics frá því í vor var sýnt fram á að samfélagslegt tap vegna tapaðra tækifæra hleypur mjög fljótlega á milljörðum. Í greiningunni kom líka fram að virði eins nýsköpunarfyrirtækis á Suðurnesjum gæti verið á bilinu 4-5 milljarðar króna. Þá er ótalinn kostnaður okkar hjá Landsneti við undirbúning sem hleypur á hundruðum milljóna króna,“ segir Sverrir Jan.

Suðurnesjalína 2 er ein mikilvægasta framkvæmdin í raforkukerfinu og á hún að tryggja raforkuöryggi íbúa og atvinnulífs á Suðurnesjum. Stjórnvöld hafa sett landshlutann í forgang við uppbyggingu flutningskerfisins enda öryggi raforkukerfisins á svæðinu ábótavant og mikilvægt að bæta þar úr sem fyrst.