Max 1
Max 1

Fréttir

Tímamótasamkomulag um uppbyggingu á Ásbrú
Samkomulagið var undirritað í Andrews Theater á Ásbrú af Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra, Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, formanni bæjarráðs og starfandi bæjarstjóra í Reykjanesbæ, og Pálma Frey Randverssyni, framkvæmdastjóra Kadeco.
Miðvikudagur 16. október 2024 kl. 13:35

Tímamótasamkomulag um uppbyggingu á Ásbrú

Samningur milli Kadeco, Reykjanesbæjar og ríkisins um uppbyggingu á Ásbrú var undirritaður í dag. Samningurinn felur meðal annars í sér að byggðar verði 800 íbúðir á Ásbrú auk uppbyggingar samfélagslegra innviða, almenningsrýmis og nýrra bygginga undir þjónustu fyrir íbúa.

Eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á Suðurnesjum hefur aukist mikið og aðstæður á Ásbrú gera það að verkum að þar er hægt að byggja hraðar upp sjálfbært íbúðahverfi en víða annars staðar. Á Ásbrú er fjölbreytt samfélag sem mun styrkjast enn frekar með uppbyggingu nýrra íbúða og innviða. Markmið samningsins er meðal annars að mæta aukinni eftirspurn eftir húsnæði, skapa fyrirsjáanleika og að hefja skipulega þéttingu og þróun byggðar á Ásbrú. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Samkomulagið var undirritað í Andrews Theater á Ásbrú af Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra, Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, formanni bæjarráðs og starfandi bæjarstjóra í Reykjanesbæ, og Pálma Frey Randverssyni, framkvæmdastjóra Kadeco.

„Við ætlum að hraða uppbyggingu og mæta húsnæðisskorti á íbúðamarkaði. Uppbygging á Ásbrú er bæði spennandi og þarft verkefni og það er mikið fagnaðarefni að við höfum skrifað undir samkomulag um næstu skref. Á svæðinu er allt til staðar sem íbúðahverfi þarf til að þar haldi áfram að byggjast upp blómleg byggð og með þessari uppbyggingu verður hægt að leggja meira í samfélagslega innviði. Með því að nýta núverandi innviði svæðisins getum við hraðað framkvæmdum og komið til móts við íbúðaskort sem er ákjósanlegt fyrir alla aðila,“ segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.

„Við fögnum þeim samningi sem var undirritaður hér í dag en hann markar tímamót í þróun Ásbrúarhverfisins til framtíðar. Við höfum lagt áherslu á mikilvægi samvinnu ríkisins og sveitarfélagsins þegar mótuð er sameiginleg framtíðarsýn fyrir hverfið og hér erum við formlega lögð af stað í þá vegferð. Á Ásbrú eru gríðarleg tækifæri og við hlökkum mikið til að sjá hverfið halda áfram að vaxa og blómstra,“ segir Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs og starfandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Samningurinn nú kemur í kjölfar vel heppnaðs útboðs á 150 íbúða uppbyggingu á svokölluðum Suðurbrautarreit á Ásbrú en þar verður byggt lágreist, gönguvænt og barnvænt hverfi í hjarta Ásbrúar.


Um Kadeco

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, hefur það meginmarkmið að leiða samstarf íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll.