Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Vilja eiga meira samráð við starfsmenn og kjörna fulltrúa
Þriðjudagur 22. október 2024 kl. 07:00

Vilja eiga meira samráð við starfsmenn og kjörna fulltrúa

Í fjárhagsáætlunargerð Suðurnesjabæjar leggur ungmennaráð bæjarins áherslu á að fá að hafa skoðanir á málefnum sem snúa að börnum og ungmennum í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í síðustu fundargerð ráðsins frá fundi þess 4. október sl.

Ráðið vill eiga meira samráð við starfsmenn og kjörna fulltrúa í áætlunargerðinni þannig að þeirra rödd hafi vægi og áhrif eins kemur fram í erindisbréfi þess.

Ungmennaráð vill að erindisbréf ráðsins verði endurskoðað og leggur áherslu á að fá að vera áheyrnarfulltrúar í fastanefndum í Suðurnesjabæ ásamt öðrum breytingum. Í núverandi erindisbréfi finnst ráðinu þau ekki hafa tækifæri til að koma sjónarmiðum barna og ungmenna í Suðurnesja-bæ á framfæri.

Bílakjarninn
Bílakjarninn