Hefja leik í háskólaboltanum
Elvar, Kristinn og Sara á nýjum slóðum
Suðurnesjamenn eiga þrjá fulltrúa í bandaríska hákólakörfuboltanum um þessar mundir. Öll hefja þau leik með liðum sínum í kvöld.
Njarðvíkingarnir Elvar Friðriksson og Kristinn Pálsson eru báðir á fysta ári í nýjum skólum, en Elvar skipti úr Brooklyn LIU skólanum yfir til Barry University í Miami í Florida. Lið Elvars tekur á móti Florida Memorial í fyrsta leik.
Kristinn leikur með Marist University í New York fylki en hann hefur leikið á Ítalíu í virtum menntaskóla undanfarin tvö ár. Kristinn byrjar á heimavelli þar sem lið Holy Cross kemur í heimsókn.
Sara Rún Hinriksdóttir úr Keflavík leikur sömuleiðis í New York fylki en hún stundar nám við Canisius College. Lið Söru fer til Ohio fylkis og mætir Youngstown State í fyrsta leik.
Hægt er að fylgjast með leikjum liðanna á vefsíðum sem eru í hlekkjum hér að neðan.