Guðmundur Leo Rafnsson hefur leik á HM á morgun
Sundkappinn Guðmundur Leo Rafnsson úr ÍRB keppir með landsliði Sundsambands Íslands á heimsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug dagana 10. til 15. desember. Mótið fer fram í Búdapest í Ungverjalandi og verður RÚV með beinar útsendingar frá undanrásum kl. 7:55 alla keppnisdagana.
Guðmundur Leo keppir í tveimur einstaklingsgreinum á mótinu, 100 metra baksundi á þriðjudeginum 10. desember og í 200 metra baksundi þann 15. desember.
Jafnframt er Guðmundur Leo í þremur boðsundsveitum Íslands:
4x50 metra fjórsund, blandað (miðvikudag)
4x100 metra fjórsund, blandað (laugardag)
4x100 metra fjórsund karla (sunnudag)