Mánudagur 28. október 2024 kl. 09:07
Fjör í Friðheimum
Friðheimar í Háaleitisskóla, sem er móttökudeild fyrir nemendur í leit að alþjóðlegri vernd, átti eins árs afmæli í síðustu viku. Nemendur hafa verið hrifnir af laginu hans Steinda Jr., The Hardest Karaoke song in the world, og sungið það reglulega í vetur. Því var því mikil gleði þegar Steindi mætti á svæðið og söng með þeim lagið ásamt því að hlusta á nemendur syngja fyrir hann tvö önnur lög. Allir nemendur fóru mjög svo sáttir í helgarfrí eftir eftirminnilegan dag.