Mannlíf

Þúsundir skemmtu sér á Ljósanótt
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 8. september 2024 kl. 11:49

Þúsundir skemmtu sér á Ljósanótt

Tugþúsundir gesta nutu tónlistar á stóra sviði Reykjanesbæjar, glæsilegrar flugeldasýningar og lýsingu bergsins á laugardagskvöldi. Dagskrá Ljósanætur náði hápunkti um kvöldið og fór vel fram í góðu veðri.

„Sólin gerir auðvitað gott betra,“ sagði Guðlaug María Lewis, verkefnastjóri Ljósanætur í skýjunum eftir vel heppnaðan og sólríkan laugardag á Ljósanótt. „Við fögnuðum sérstaklega 30 ára afmæli Reykjanesbæjar með hreint út sagt frábærri tónlistarveislu og flugeldasýningu sem landsmenn fengu að njóta með okkur í beinni útsendingu.“

Skipuleggjendur hátíðarinnar telja að hún hafi verið með þeim fjölmennari og að tugþúsundir gesta hafi tekið þátt í dagskrá laugardagsins enda margt til skemmtunar. Að sögn Guðlaugar var virkilega góð og jákvæð stemning á svæðinu og langsamlega flestir staðráðnir í að vera með ljós í hjarta á Ljósanótt eins og lagt var upp með. „Við höfum auðvitað áhyggjur eins og aðrir af hópamyndun og ölvun unglinga sem virðist orðið samfélagslegt vandamál sem þjóðin þarf að taka höndum saman um að stemma stigu við. Eftir því sem við best vitum á þessari stundu gekk þetta stórslysalaust hjá okkur og fyrir það erum við þakklát.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í tilkynningu frá lögreglu segir að nokkuð hafi verið um ölvun hjá ungmennum og þurfti lög­regl­an að hafa af­skipti af þeim þar sem haft var sam­band við for­eldra í sam­starfi við barna­vernd. Þá var einn með ofbeldi gegn lögreglumönnum og kýldi tvo þeirra. Var hann settur í fangageymslu  og bíður kæru vegna málsins.

Síðasti dagur Ljósanætur er í dag og enn geta gestir sótt sýningar, tónleika og tívolí og þannig klárað það sem þeir hafa ekki komist yfir. Hátíðinni lýkur í kvöld með tónleikum Herberts Guðmundssonar og kórs Keflavíkurkirkju í Keflavíkurkirkju.