Flóttamannabúðir í Reykjanesbæ?
Formaður allsherjar- og menntamálanefndar kallaði eftir því nú á dögunum að flóttafólk fái að dvelja saman á ákveðnu svæði fyrstu vikur þeirra eða mánuði á Íslandi og stunda nám og vinnu. Þetta svæði er Reykjanesbær enda getur sá bær alltaf á sig blómum bætt.
Viðkomandi þingmaður hlaut eðlilega skammir og ákúrur frá sveitarstjórnarfólki á svæðinu enda þessi tillaga vægast sagt stórundarleg. Vildi þessi ágæti þingmaður nú ekki meina að um flóttamannabúðir væri að ræða sem er þó akkúrat málið. Reykjanesbær yrði auðvitað tilvalinn staður fyrir slíkar búðir enda drýpur hér smjör af hverju strái. Eins og hver einasti starfsmaður bæjarfélagsins okkar getur vitnað um þá eru innviðir bæjarfélagsins löngu sprungnir og starfsfólk víða að bugast undan miklu álagi. Hvernig á að hjálpa fólki í neyð á stað þar sem allir innviðir eru sprungnir? Leikskólar, grunnskólar og t.d. félagslega kerfið, þetta er hvellsprungið. Á meðan stendur ríkisvaldið hjá glottandi og sker t.d. niður framlög til HSS enn og aftur en þessi stofnun hefur ávallt fengið löngutöng frá ríkinu. Hérna búa hvort eð er annars flokks þegnar og hafa alltaf gert. Í skjóli nætur tekur ríkið svo húsnæði á leigu upp á Ásbrú og þar á að hýsa 400 manns sem væntanlega þurfa að nýta sér innviði Reykjanesbæjar. Þetta er gert án alls samráðs við sveitarfélagið. Köld tuska framan í sveitarfélag sem hefur lagt hvað mest til málanna þegar kemur að málefnum flóttamanna og hælisleitenda. Langflest sveitarfélög á landinu gera nákvæmlega ekki neitt í þessum málum, leggja ekkert til málanna. Reykjanesbær hefur gert sitt og gott betur en það. En nú er gjörsamlega komið að þolmörkum.
Annars eru málefni flóttamanna og hælisleitenda flókin og erfið viðfangs. Mikil aukning hefur verið á straum fólks til landsins síðustu ár og ljóst að ærið verkefni er fram undan hjá okkur sem þjóð í þessum málum. Fyrst og fremst þarf að dreifa álagi og það gengur alls ekki að fáein sveitarfélög leggi hönd á plóginn. Þessi mál eru gríðarlega viðkvæm og stjórnmálamenn ræða þau ekki á yfirvegaðan hátt, upphrópanir eru tíðar. Margir þora svo ekki í umræðuna af ótta við að vera úthrópaðir rasistar eða hreinlega bara vont fólk ef það styður ekki móttöku allra þeirra sem sækja hérna um hæli. Aðrir vilja bara skella öllu í lás og hjálpa helst engum.
Við þurfum að fara einhvern milliveg því það verður aldrei hægt að hjálpa öllum en þeim sem við ætlum að hjálpa þá ber okkur sú skylda að gera það vel. Það verður ekki gert með því að gera Reykjanesbæ að flóttamannabúðum eða setja allt álagið á fárra manna hendur. Því miður sést það á orðum formanns allsherjar- og menntamálanefndar að engin almenn skynsemi er hjá ríkisvaldinu í þessum málum.
Örvar Þ. Kristjánsson