Aðsent

Fermingarbörn ganga í hús í Reykjanesbæ
Mynd úr safni.
Mánudagur 4. nóvember 2024 kl. 13:00

Fermingarbörn ganga í hús í Reykjanesbæ

Næstkomandi þriðjudag og miðvikudag munu væntanleg fermingarbörn í Reykjanesbæ ganga í hús og  safna peningum en söfnunarfé fer í þróunaraðstoð í Eþíópíu og Úganda.

Þetta er árleg söfnun fermingarbarna Þjóðkirkjunnar. Fyrir söfnunina hafa fermingarbörnin fengið fræðslu um verkefnið, sem snýst um að safna fyrir vatnsbrunnum í löndunum tveimur.

SSS
SSS

Við hvetjum söfnuðinn til þess að taka vel á móti fermingarbörnum, sem hafa ávallt staðið sig vel og safnað drjúgum upphæðum í þessu verkefni sem hefur komið sér vel fyrir svæði þar sem vatnsskortur er viðvarandi vandamál.

Hægt verður að greiða með reiðufé í bauka eða að millifæra beint á reikning hjálparstarfsins. 

Fermingarbörn í Njarðvíkursókn mun ganga í hús þriðjudaginn 5.nóvember kl.17:00 – 19:00

Fermingarbörn í Keflavíkurkirkju munu ganga í hús miðvikudaginn 6. nóvember kl. 17:30-20:30  

Starfsfólk og prestar Keflavíkursóknar og Njarðvíkursókna