Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Moggalygi í Magmamáli
Miðvikudagur 3. ágúst 2011 kl. 19:21

Moggalygi í Magmamáli

Mér þótti merkilegt að lesa það á síðum Morgunblaðsins og á Víkurfréttavefnum, haft eftir sjálfstæðismanninum og bæjarstjóranum Ásmundi Friðrikssyni, að kaup lífeyrisjóðanna á hlut í HS Orku og greiðslur Alterra Power (Magma) til eiganda síns, væri lokahhnykkurinn í svikamyllu Steingríms nokkurs Sigfússonar í þessu alkunna Magma máli. Vegna þess að nú hamast menn við að endurskrifa söguna eftir sínu höfði, vil ég leyfa mér að rifja upp nokkur atriði sem leiddu til þess að stór hluti Hitaveitu Suðurnesja (HS Orka) gekk okkur úr greipum á sínum tíma.

1. Það voru forráðamenn sveitarfélaganna sjálfra sem seldu hluti þeirra í Hitaveitu Suðurnesja til Geysis Green Energy árið 2007. Þáverandi fjármálaráðherra sjálfstæðismaðurinn Árni Matthiessen lagði einnig sitt af mörkum og sá til þess að ríkið seldi sinn hlut. Þá barðist ég ásamt mörgu góðu fólki gegn þessu en við höfðum því miður ekki erindi sem erfiði. Margir sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum tóku á þessum tíma peningalega skammtímahagsmuni fram yfir samfélagslega langtímahagsmuni.

2. Það voru sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ ásamt GGE sem skiptu Hitaveitunni upp í HS Veitur og HS Orku árið 2009 og sáu til þess að eignarhlutur Reykjanesbæjar í HS Orku var færður yfir til GGE. Bæjarfulltrúar A listans í Reykjanesbæ lögðust mjög hart gegn þessu en sjálfstæðismenn komu þessu í gegn í krafti meirihluta síns í bæjarstjórn.

3. Það voru síðan forráðamenn GGE sem hófu strax á árinu 2009 að selja Magma hluti í HS Orku.

4. Þegar að fyrir lá á árinu 2010 að GGE væri komið í þrot og Magma myndi kaupa HS Orku þá var það meirihluti sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ sem heimilaði að Magma yfirtæki það skuldabréf sem gefið hafði verið út á GGE á sínum tíma. Sá gjörningur gerði það að verkum að Magma gat keypt hlut GGE í HS Orku.
Þegar hér var komið sögu var því miður ekkert sem gat stöðvað þessa sölu, nema að til hefðu komið stórfelldar skaðabætur. Stórskapítalistinn Ásmundur Friðriksson ætti að skilja það að það var ekki hægt að grípa inn í lögleg viðskipti fyrirtækja sín á milli.

Ég minnist þess ekki að bæjarstjórinn Ásmundur Friðriksson hafi á einhverju stigi lagst á sveif með okkur sem reyndum að koma í veg fyrir að Hitveitan yrði seld og lenti í höndum einkaaðila og síðar útlendinga. Ég minnist þess heldur ekki að hann hafi á einhverjum tímapunkti gagnrýnt forráðamenn sveitarfélaganna fyrir þetta.

Ég skil það vel að það þjóni hagsmunum sjálfstæðismanna að kenna bara vesalings fjármálaráðherranum um þetta allt saman. Annað eins fær hann yfir sig þessa dagana. Sjálfstæðismenn vita auðvitað upp á sig skömmina í öllu þessu máli. Ég hafði hins vegar ekki gert mér grein fyrir að menn væru svo vitlausir að halda að við Suðurnesjamenn værum búnir að gleyma því hverjir slátruðu Hitaveitunni okkar. Ásmundur þarf að halda nokkrar skötuveislur til viðbótar áður en það gerist.

Guðbrandur Einarsson
íbúi í Reykjanesbæ

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024