„Ég á lítinn skrítinn skugga – Lífið er núna“
Fjáröflunar - og vitundarvakning Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein hófst í dag. Vitundarvakningin er árleg og er ein stærsta fjáröflun félagsins.
Markmið átaksins er að vekja athygli á mikilvægi starfsemi Krafts og veita fólki innsýn inn í þær áskoranir sem fylgja því að greinast ungur með krabbamein eða vera aðstandandi, en um 70 ungir einstaklingar greinast á ári hverju hér á landi.
Yfirskrift fjáröflunar- og vitundarvakningar Krafts í ár er „Ég á lítinn skrítinn skugga – Lífið er núna” og vísar til þeirra langtímaáhrifa sem það hefur að greinast ungur með krabbamein, ekki bara á þann sem greinist heldur einnig á aðstandendur. Hvort sem við höfum greinst með krabbamein, einhver okkur nákominn eða við orðið fyrir öðrum áföllum á lífsleiðinni, þá eigum við öll okkar skugga sem er alltaf til staðar.
Fjáröflunarvara Krafts, Lífið er núna-húfan, sækir innblástur í hönnun listakonunnar Tótu Van Helzing sem var félagsmaður í Krafti og var stórkostlegur prjónahönnuður.
Nokkrir félagsmenn Krafts segja sögu sína í átakinu sem verður hægt að finna á www.lifidernuna.is og víðar á meðan á átakinu stendur með það að markmið að leyfa almenningi að öðlast innsýn inn í reynsluheim félagsmanna Krafts.
Opnunarhátíð herferðar verður haldin fimmtudaginn 23. janúar, í verslun Rammagerðarinnar á Laugavegi 31. Frumsýnd verður auglýsing vitundarvakningarinnar 2025, nýja Lífið er núna húfan verður kynnt til leiks og opnum við dyrnar að glæsilegri Tótu Van Helzing sýningu í Rammagerðinni.
DJ Dóra Júlía heldur uppi stuðinu, en auk þess mun Jónsi, Hipsumhaps og Una Torfa koma fram.
„Það er okkur hjá Krafti heiður að hafa fengið að nýta innblástur frá verkum Tótu Van Helzing við hönnum á nýju Lífið er núna-húfunni og munum við bjóða uppá Tótu Van Helzing sýningu „HOUSE OF VAN HELZING“ í Rammagerðinni“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.
Kraftur er alfarið rekið fyrir velvild almennings og fyrirtækja í landinu og skiptir fjáröflun sem þessi gríðarlega miklu máli.