Heklan
Heklan

Fréttir

Bókin Leitin að orðum - fyrir fólk af erlendum uppruna
Mánudagur 27. janúar 2025 kl. 08:31

Bókin Leitin að orðum - fyrir fólk af erlendum uppruna

Bókin Leitin að orðum er komin út og er ætluð fyrir fólk af erlendum uppruna sem er búið með grunninn í íslensku eða eru á síðustu stigum íslenskukennslunnar og kennara sem vilja efla orðaforða íslenskra barna og unglinga og þá sem vilja rifja upp íslenskuna.

Þetta er sjötta bók Kristínar Guðmundsdóttur fyrir fólk af erlendum uppruna. Þær bækur sem hún hefur gefið út eru: Nýjar slóðir 2020, Óvænt ferðalag 2021, Leiðin að nýjum heimi 2022,  Birtir af degi 2023 og Tólf lyklar 2024.

Ástæða þess að hún fór að gefa þessar bækur út af eigin frumkvæði, var að vinkona hennar, sem kom til landsins árið 1995, sagði að það var skortur á góðu lestrarefni fyrir fólk af erlendum uppruna. Hún er myndlistamaður að mennt og segist hafa lært meira í tungumálinu við lestur bókanna. Með ábendingum frá henni eru erfið orð, spakmæli og orðasambönd útskýrð með tilvísunum. Auk þess sem ein handteiknuð mynd fylgir hverri sögu og styður við tilvísanirnar. Bókin inniheldur 12 stuttar og skemmtilegar skáldsögur af ýmsu tagi.

 

www.facebook.com/Bók-fyrir-fólk-af-erlendum-uppruna-696197564146094