Eldgosaviðvörunarkerfið tilnefnt til UT-verðlauna
Sjálfvirkt eldgosaviðvörunarkerfi, sem auðlindastýring HS Orku hefur þróað, er tilnefnt til UT-verðlauna Ský í ár. Viðvörunarkerfið er fyrsta sinnar tegundar í heiminum.Hugbúnaðurinn í kerfinu les inn gögn sem send eru á hverri mínútu frá þrýsti- og hitamæli sem staðsettur er á 850 metra dýpi í borholu 12 í Svartsengi. Hugbúnaðurinn greinir því næst gögnin og ef þrýstimerkið bendir til þess að kvika sé á hreyfingu eru sjálfvirk viðvörunarskilaboð send til Veðurstofu Íslands. Viðvörunarkerfið hefur reynst afgerandi í því að upplýsa Veðurstofuna og Almannavarnir um yfirvofandi eldgos og er kerfið nýtt þar við ákvarðanir um rýmingar.
Verðlaunin verða afhent á UTmessunni í Hörpu í dag, föstudaginn 7. febrúar. Átján vinnustaðir og verkefni eru tilnefnd að þessu sinni en verkefni HS Orku er eitt þriggja í flokknum stafræn opinber þjónusta. UT-verðlaunin eru veitt fyrir mikilvægt framlag til upplýsingatækni á Íslandi og eru nú veitt í sextánda sinn. Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, veitir verðlaunin í ár.
Ský er félag fyrir fólk og fyrirtæki í upplýsingatækni. Félagið er opið öllum og rekið án hagnaðarmarkmiða en meðlimir eru um 1.100 talsins. Ský var stofnað árið 1968 og hlutverk þess er að miðla þekkingu milli fólks sem starfar við eða hefur áhuga á upplýsingatækni. Ský starfrækir einnig fjórtán faghópa og stendur árlega fyrir tugum fjölbreyttra viðburða um tækni og UTmessuna, sem þúsundir sækja.