Fréttir

Ferðamenn á vappinu á lokunarsvæði við gosið
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 21. nóvember 2024 kl. 16:33

Ferðamenn á vappinu á lokunarsvæði við gosið

Nokkrir ferðamenn voru á ferðinni á lokuðu svæði við Grindavíkurveg í dag. Þau voru spurð hvernig þau hefði komist inn á svæðið en þau voru á vappi meðal fjölmiðlafólks og vísindamanna við hraunjaðarinn við Grindavíkurveg. „Við keyrðum bara eitthvað, við vitum það ekki. Er þetta lokað svæði?,“ spurðu þau til baka og brostu til fréttamanna VF.

Eftir að hafa tekið nokkrar myndir héldu þau á brott. Þau höfðu komst inn á Grindavíkurveginn á ferð frá Reykjanesi eftir leiðsögn frá „Google“.

SSS
SSS