Tekur nokkra daga að undirbúa viðgerð á Svartsengislínu
Landsnet segir að nokkra daga taki að undirbúa viðgerðir á Svartengislínu 1 sem fór undir hraun í morgun. „Þrátt fyrir að aðstæður geri viðgerðir ómögulegar eins og er – á meðan hraunið heldur áfram að renna – höfum við þegar hafist handa við undirbúning.
Við erum að safna saman nauðsynlegum búnaði, færa efni inn á svæðið og skoða allar leiðir sem eru í stöðunni. Ljóst er þó að hver sem lausnin verður mun viðgerðarferlið taka nokkra daga.
Við erum stolt af samhentum viðbrögðum og því að geta unnið undir þessum krefjandi aðstæðum. Þökkum fyrir skilning og stuðning á meðan við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að leysa úr stöðunni,“ segir í tilkynningu frá Landsneti.
Myndirnar eru frá Landsneti.