Njörður fundinn í Noregi - týndur í 996 daga
Njörður Garðarsson, björgunarbátur björgunarsveitarinnar Suðurnes sem slitnaði aftan úr björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein á Faxaflóa í brotsjó árið 2009 er nú loks kominn aftur í leitirnar. Eftir að hafa verið týndur í 996 daga þá fannst báturinn nú um helgina, 1077 mílum frá þeim stað sem hann týndist. Njörður fannst við Vesterålen sem er nyrst í Noregi en það var norskur fiskibátur sem var bátsins var, en stefnið á Nirði stóð upp úr hafinu eins og sjá má á myndum hér að neðan. Báturinn, sem er Atlantic 21 harðbotna björgunarbátur, slitnaði aftan úr björgunarskipinu í október árið 2009 eftir að brotsjór hafði komið á skipið og hvarf sjónum manna. Bátsins var leitað lengi vel en án árangurs.
Kári Viðar Rúnarsson formaður Björgunarsveitarinnar Suðurnes sagði í samtali við VF að það væru vissulega gleðitíðindi að heyra af bátnum og hann var á því að fundurinn væri ansi merkilegur fyrir margra hluta sakir. „Hönnuður bátsins hafði alltaf sagt að það væri varla hægt að sökkva bátnum nema hann myndi hreinlega brotna í spað. Það hefur því sýnt sig að hann hefur greinilega ekki sokkið fyrr en eftir langt ferðalag og hreint ótrúlegt að hann hafi komist alla þessa leið án þess að einhver yrði hans var,“ sagði Kári og bætti því við að líklega myndi beinagrind bátsins sennilega skila sér hingað til lands. „Norska strandgæslan er líkega á leið hingað til lands í sumar og þá er möguleiki á því að leyfar bátsins verði með í för, þetta er þó óljóst enn og við erum að bíða frekari upplýsinga frá Noregi.“
Að neðan eru myndir frá Norsku strandgæslunni af vettvangi.
Tengd frétt: Skipstjóri björgunarskips slasast í brotsjó