Opinn fundur um stöðu íbúðauppbyggingar á Suðurnesjum
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, Tryggð byggð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fundarröð um land allt um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur í Keflavík nk. mánudag.
Í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er boðað til fundar um stöðu íbúðauppbyggingar á Suðurnesjum. Fundurinn verður haldin á Hótel Keflavík mánudaginn 25. nóvember og hefst kl. 12:00. Boðið verður upp á súpu og brauð.
Fundinum verður einnig streymt á facebook síðu HMS.
Dagskrá:
Vaxandi Reykjanesskagi: Hvernig íbúafjöldi og atvinnulíf mótar framtíðina
- Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur
- Jón Örn Gunnarsson og Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingar á húsnæðissviði HMS
Byggjum í takt við þarfir
- Þorgils Helgason, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.
Fundarstjóri: Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum