Heklan
Heklan

Fréttir

Prófanir á neyðarhitaveitu í Rockville í undirbúningi
Búnaður fyrir neyðarhitaveitu í Rockville. VF/Hilmar Bragi
Föstudagur 31. janúar 2025 kl. 17:45

Prófanir á neyðarhitaveitu í Rockville í undirbúningi

- setja upp tvo gufukatla á Fitjum

Eins og greint var frá í Víkurfréttum í vikunni hefur verið sett upp neyðarhitaveita í Rocckville á Miðnesheiði og til stendur að setja upp búnað vegna neyðarhitaveitu á Fitjum. Vatni sem verður veitt frá þessum búnaði er ætlað að halda veitukerfum á þjónustusvæðinu frostfríum. Um er að ræða samstarfsverkefni stjórnvalda, HS Orku og HS Veitna með aðstoð ÍSOR, borfyrirtækja og annarra verktaka.

HS Veitur birta samantekt um neyðarhitaveituna á vef sínum í dag. Þar segir:

Fyrsti hluti verkefnisins er nú langt kominn sem felst í því að nýta lághita sem fannst í Rockville sem hluta af neyðarhitaveitu fyrir Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga. Með því er gert ráð fyrir að mögulegt verði að halda veitukerfum frostfríum. Mun það gagnast ef á reynir þar sem tankveitan svokallaða sem gripið var til í heitavatnsleysi í febrúar á síðasta ári skilaði því að minni skemmdir urðu á lagnakerfi þar sem tókst að halda velgju á lögnum og hitaveitunni komið í jafnvægi fyrr en ella.

Vegna efnasamsetningar jarðhitavökvans í Rockville er ekki mögulegt að tengja hann beint inn á hitaveituna og því þarf að nýta varmann til forhitunar á köldu vatni sem síðan er dælt inn á veitukerfi HS Veitna. 

Til þess þurfti að koma upp tæknilega flóknum búnaði við borholuna og hefur hönnun, smíði og kaup á þeim búnaði staðið yfir síðustu mánuði. Hafa HS Veitur lagt heitavatnspípu sem tengir umrædda innviði við stofnæð hitaveitu og eru prófanir nú í undirbúningi. Að því loknu verður gengið frá búnaðinum þannig að hann verði tiltækur ef á þarf að halda. Afkastageta neyðarkyndistöðvarinnar í Rockville verður um 50 l/s af 85°C heitu vatni.

Til að auka afköst neyðarhitaveitunnar verður í næsta fasa unnið að því að koma upp samskonar neyðarkyndistöð á Fitjum í Reykjanesbæ.

Þar sem engin lághitahola er á Fitjum er gert ráð fyrir tveimur gufukötlum sem geti skilað álíka miklu magni, um 50 l/s af 85°C heitu vatni. Er sá búnaður á leið til landsins og í undirbúningi að útbúa undirstöður fyrir búnaðinn. Í framhaldi er ætlunin, með áframhaldandi stuðning stjórnvalda að skoða hvort einni neyðarkyndistöð af sömu stærð verði bætt við.

Samtals afkastageta neyðarhitaveitunnar gæti þá orðið um 150 l/s af 85°C heitu vatni ef farið verður alla leið í uppsetningu búnaðar. Til samanburðar hefur heitavatnsnotkun  í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og vogum numið 450 l/s að jafnaði yfir árið en álagið er mismunandi eftir árstíðum og meira að vetri til. 

Neyðarhitaveitunni er ætlað að koma í veg fyrir neyðarástand ef heitt vatn hættir að berast frá Svartsengi vegna náttúruhamfara.

Magninu af heitu vatni er ætlað að duga til að draga úr líkum á frostskemmdum fasteigna á svæðinu en óvíst er hverju hún mun skila til upphitunar húsa enda fer það mikið eftir útihitastigi við slíkar aðstæður.  Með því að halda húsum frostfríum getur neyðarhitaveitan í það minnsta auðveldað íbúum að ná upp lágmarks hita í húsum með rafkyndingu ef á reynir.
 
Þetta verkefni er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi og því um þróunarverkefni að ræða. Endanleg virkni neyðarhitaveitunnar er því ekki alveg fyrirsjáanleg.