Segja upp þjónustu sem einstaklingar með lögheimili í Grindavík eru að nýta
Bæjarráð Suðurnesjabæjar telur að þriggja mánaða uppsagnarfrestur Grindavíkurbæjar á samningi um rekstur sameiginlegra þjónustuúrræða fyrir fatlað fólk á Suðurnesjum sé of skammur. Bæjarráðið leggur áherslu á að uppsagnarfrestur sé a.m.k. sex mánuðir, m.a. vegna þess að brotthvarf Grindavíkurbæjar úr samstarfinu mun hafa veruleg áhrif á fjárhagsáætlanir hinna samstarfssveitarfélaganna.
Félagsþjónusta og sameiginlegur rekstur sveitarfélaga á Suðurnesjum var til umræðu á síðasta fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar. Grindavíkurbær hefur sagt upp samningi og hættir samstarfi um Hæfingarstöðina og Björgina í Reykjanesbæ og skammtímavistun í Heiðarholti í Suðurnesjabæ með þriggja mánaða uppsagnarfresti frá og með 1. janúar.
Í afgreiðslu bæjarráðs Suðurnesjabæjar segir að því þyki miður að Grindavíkurbær gangi út úr sameiginlega reknum úrræðum sveitarfélaganna á Suðurnesjum, sér í lagi þar sem einstaklingar með lögheimili í Grindavík nýta þá þjónustu sem úrræðin veita.
Bæjarráð Suðurnesjabæjar leggur einnig áherslu á að Grindavíkurbær tryggi að nauðsynlegum upplýsingum um áhrif ákvörðunar þeirra verði komið á framfæri með skýrum hætti við þá einstaklinga og fjölskyldur sem úrsögnin mun hafa áhrif á.