Max 1
Max 1

Íþróttir

Keflvíkingar áfram í VÍS-bikar karla eftir sigur gegn Hamri
Wendell Green skoraði 26 stig í leiknum.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
þriðjudaginn 22. október 2024 kl. 09:58

Keflvíkingar áfram í VÍS-bikar karla eftir sigur gegn Hamri

Keflvíkingar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum VÍS-bikars karla í körfuknattleik eftir öruggan sigur gegn Hamri á útivelli, 85-101.

Keflvíkingar gáfu strax tóninn, unnu fyrsta fjórðung, 17-28 og sigurinn var aldrei í hættu.

Wendell Green var stigahæstur Keflvíkinga, setti 26 stig og tók 7 fráköst. Hilmar Pétursson kom næstur með 15 stig og Marek Dolezaj var sá eini sem skilaði tvennu, var með 12 stig og 11 fráköst.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Dregið verður í 16-liða úrslitum á morgun, bæði hjá körlum og konum en öll Suðurnesjaliðin munu eiga fulltrúa þar.