Sagt fyrir tæpri viku: „Vinnum 4-0“
Sigurður B. Magnússon spáði fyrir tæpri viku rétt um úrslit leiksins milli Liverpool og Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á Anfield en leikurinn fór fram í gærkvöldi. Úrslitin urðu 4-0 en Barcelona hafði unnið fyrri leikinn með þremur mörkum gegn engu og því varð Liverpool að skora fjögur mörk án þess að fá á sig mark.
Eftir fyrri leik liðanna skrifaði Sigurður: „Vinnum 4-0“.
Sigurður, nú væri gott að fá að vita tölurnar í Víkinglottóinu í kvöld.