Íþróttir

Þorvaldur lætur af þjálfarstörfum hjá Keflavík
Þorvaldur og Jón Ben formaður Keflavíkur.
Þriðjudagur 4. október 2016 kl. 20:42

Þorvaldur lætur af þjálfarstörfum hjá Keflavík

Þorvaldur Örlygsson sem tók við þjálfun meistaraflokks karla haustið 2015 lætur nú af störfum sem þjálfari Keflvíkinga og mun að öllum líkindum hverfa til starfa hjá Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) í fullu starfi nú í haust.

 
Þorvaldur hefur samhliða þjálfun meistaraflokks karla hjá knattspyrnudeildinni starfað í hlutastarfi hjá KSÍ sem þjálfari U-19 ára landsliðs karla. KSÍ hyggst nú gera þetta að 100% starfi sem mun hafa þau áhrif að Þorvaldur getur ekki þjálfað félagslið samhliða.


Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Þorvaldi fyrir vel unnin störf á liðnu ári og ánægjulegt samstarf og óskar honum velfarnaðar í starfi hjá KSÍ, segir í sameiginlegri fréttatilkynningu.

Keflavík endaði í 3. sæti í Inkasso-deildinni í sumar. All nokkrar væringar voru um áframhaldandi störf Þorvaldar hjá félaginu og ekki allir á eitt sáttir með hans störf í sumar.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn