Þunnur hópur Grindvíkinga gegn Val í 32-liða úrlsitum bikarsins í dag
2. flokkur í æfingaferð á Spáni, flug fellt niður
Grindavík mætir liði Valsmanna í dag í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla og fer leikurinn fram á gervigrasvellinum í Reykjanesbæ og hefst kl. 14:00. Lið Grindvíkinga verður þunnskipað þar sem 2. flokkur félagsins er í æfingaferð á Spáni og flugið heim breyttist.
Sigurður Óli Þorleifsson er varaformaður knattspyrnudeildar Umfg.
„Ertu ekki skráður í Grindavík,“ var fyrsta spurning Sigga Óla til blaðamanns. Því miður er staðan ekki þannig, síðustu leikirnir fóru fram undir merkjum Gróttu.
„Þarna fór líklega síðasta tækifærið þitt á glæstum atvinnumannsferli,“ sagði Siggi Óli.
Verður fróðlegt að sjá hvaða leikmenn verða dregnir á flot í þessum mikilvæga bikarleik. Það kæmi mjög á óvart ef liðsstjórinn og köggullinn Leifur Guðjónsson, verður ekki í búningi og eins hljóta líkurnar að vera meiri en minni á að formaðurinn Haukur Guðberg Einarsson verði í búningi.