Mannlíf

Auglýsir eftir myndefni frá Grindvíkingum vegna heimildamyndar
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, í viðtali hjá Margréti.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
þriðjudaginn 11. febrúar 2025 kl. 11:38

Auglýsir eftir myndefni frá Grindvíkingum vegna heimildamyndar

Myndbönd og myndir frá skjálftum í aðdraganda rýmingar, og rýmingunni sjálfri

„Í mínum huga eru Grindvíkingar súperhetjur,“ segir Margrét Hrafnsdóttir, kvikmyndagerðakona en hún dvaldi mikið í Grindavík á síðasta ári ásamt einstöku tökuliði og samstarfsfólki vegna heimildarmyndar um hamfarirnar í Grindavík og hina fjölmörgu eftirmála fyrir Grindvíkinga sem enn sér ekki fyrir endann á. Myndina er Margrét að gera í samvinnu við kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Ursus Parvus sem er í eigu Hlínar Jóhannesdóttur framleiðanda.
Margrét er nýlega komin aftur til Íslands til að klára tökur og biðlar til Grindvíkinga um að senda sér myndbönd og myndir frá skjálftum í aðdraganda rýmingar, og frá rýmingunni sjálfri.

Margrét fékk tónlistarmanninn Högna Egilsson í Hjaltalín til að semja tónlistina í myndina og miðvikudaginn 11. desember voru haldnir aðventutónleikar í Grindavíkurkirkju sem markaði upphaf á upptökum á tónlistinni fyrir myndina.

Margrét hefur búið ásamt eiginmanni sínum Jóni Óttari Ragnarssyni í suður Kaliforníu til fjölda ára en Jón Óttar stofnaði Stöð 2 á sínum tíma. Þau eiga og reka kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Othar Raven Pictures & TV og una hag sínum vel í sólinni í Hollywood. 

Margrét Hrafnsdóttir

Margrét fékk hugmyndina að myndinni í draumi í mars og telur að hennar hafi verið vitjað, en segir að hún sé enn að velta því fyrir sér hver það var. Einhverjum sem þótti afskaplega vænt um Grindavík og fólkið þar. 

„Þetta heltók mig má segja og ég las allt sem hönd á festi um Grindavík og Grindvíkinga, allt frá dögunum fyrir 10. nóvember þegar jarðskjálftarnir voru sem mestir og svo í rýmingunni, í eldgosunum og í raun bara allt sem viðkom Grindvíkingum fyrir og eftir þennan sögulega dag 10. nóvember 2023. 

Við Jón Óttar ræddum þetta og vorum sammála um að þetta viðfangsefni væri kjörið í heimildarmynd. Það var líklega ekki hægt að finna merkilegri sögu að segja á þessum tímapunkti en þessa sögu Grindvíkinga. Ráðgert er að sýna myndina á RÚV. Við erum komin með samstarf um alþjóðlega dreifingu sem við erum þakklát fyrir og segir okkur hversu mikill áhugi er á þessum atburðum erlendis.

Fjölmargir Grindvíkingar eru teknir tali, hér er „sjálfa“ með forseta bæjarstjórnar Grindavíkur, Ásrúnu Helgu Kristinsdóttur

Við settum okkur í samband við Grindvíkinga og erum þeim gríðarlega þakklát fyrir samvinnuna og samstarfið. Allstaðar var fólk tilbúið að bjóða okkur inn að sínum innstu hjartarótum ef svo má segja. Grindvíkingar eru orðnir eins og fjölskylda manns, bæði allt undirbúningsferlið og svo vorum við meira og minna í Grindavík í allt sumar og kynntumst þessu frábæra samfélagi betur. Við erum líka þakklát yfirvöldum fyrir að fá að hafa fengið að vera í Grindavík en bærinn var lokaður á þessum tíma. Við kynntumst því öllu því einstaka fólki sem starfaði í bænum síðasta sumar, allt frá lögreglu, slökkviliðs- og björgunarsveitarfólki, fiskverkafólki og starfsmönnum útgerðarfélaganna, sigmönnum og starfsmönnum bæjarins sem unnu við lagfæringar á skemmdum sem og starfsfólki smærri fyrirtækjanna eins og hjá Hérastubbi bakara, Papas pizza og fleiri sem voru að reyna að halda lífi í fyrirtækjum sínum. Hádegisverðirnir á Sjómannastofunni Vör voru eftirminnilegir, þessu sumri gleymi ég aldrei. 

Í mínum huga eru Grindvíkingar súperhetjur og við lítum á það sem mikinn heiður að fá að ferðast með þessu fólki í gegnum þennan ofboðslega erfiða kafla í lífi þeirra. Þetta samfélag er einstakt og mjög sérstakt og Grindvíkingar munu ætíð eiga stað í hjarta mér.“

Margrét með grindvíska tónlistarmanninum Guðjóni Sveinssyni, og fjölskyldu hans.

Hluti tónlistar tekin upp í Grindavíkurkirkju

Margrét fékk hinn þekkta tónlistarmann, Högna Egilsson í Hjaltalín, til að semja tónlistina í kvikmyndina og hugmynd fæddist.

„Það er frábært fyrir okkur að fá Högna til að semja tónlistina en hann er einmitt tilnefndur núna til norrænu tónlistarverðlaunanna fyrir tónlist sína í kvikmynd Baltasars Kormáks, Snertingu. Högni ætlar sér að taka alla tónlistina upp í Grindavík og fyrsta skrefið í þeirri vegferð voru þessir tónleikar í Grindavíkurkirkju miðvikudagskvöldið 11. desember. Hann og Sigríður Thorlacius komu fram á þessum tónleikum ásamt tveimur frábærum grindvískum söngvurum, þeim Arneyju Ingibjörgu Sigurbjörnsdóttur og Tómasi Guðmundssyni. Þau sungu jólalög en þeim til halds og trausts var kirkjukór Grindavíkurkirkju og hinn frábæri kórstjóri þeirra, Kristján Hrannar Pálsson. Lög eftir Sigvalda Kaldalóns voru að sjálfsögðu flutt þetta kvöld, bæði Nóttin var sú ágæt ein og Ave Maria og ég held því fram að töfrar hafi gerst þetta kvöld,“ segir Margrét.

Sólný Pálsdóttir

Aðstoð Grindvíkinga

Sólný Pálsdóttir er Grindvíkingur og eitthvað í fari hennar dregur athygli að henni en Sólný er ein Vísis-systkinanna en þau eru einkar söngelsk og oft áberandi í grindvísku mannlífi. Systkin gerðust fljótlega tengiliðir Grindvíkinga við Margréti vegna myndarinnar.

„Þegar Margrét hafði samband við okkur systkinin og óskaði eftir samstarfi vorum við öll sammála um að það væri mikilvægt að skrásetja atburðina í Grindavík og ákváðum því að taka þátt í þessu verkefni. Það var dálítið sérstakt hvernig það kom til að hún hafði samband við okkur en við trúum því að það hafi verið skrifað í skýin því það hefur verið virkilega gott að vinna með henni og öllu hennar frábæra samstarfsfólki. Okkar hlutverk hefur verið að tengja fólk saman og benda á viðmælendur úr Grindavík sem treysta sér til að koma í viðtal og deila reynslu sinni sem íbúi í Grindavík. Það er ekki sjálfsagt að geta talað um þá erfiðu reynslu sem fólk upplifði í náttúruhamförunum í Grindavík en það er dýrmætt að sagan sé skráð, ekki bara fyrir okkur Grindvíkinga heldur alla því við vitum að þetta er saga okkar allra. Það hefur verið frábært að fylgjast með hvernig Margrét og hennar fólk nálgast viðmælendur á fallegan og nærgætinn hátt, þetta er engin skemmtiskráning og þess vegna er mikilvægt að vanda þessa vinnu. Tónleikarnir þetta miðvikudagskvöld voru vel heppnaðir og það var yndislegt að sjá flytjendur leggja allt í þetta en auðvitað var sérstaklega gaman að sjá grindvíska listamennina koma fram í fallegu kirkjunni og bræða hjörtu okkar allra. Tökum á myndinni er ekki lokið og enn á eftir að tala við nokkra Grindvíkinga, saga hvers og eins er einstök og vonandi nær myndin að birta sanna mynd af lífi okkar á þessum óvissutímum sem því miður er ekki lokið enn,“ segir Sólný.

Arney Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir og amma hennar, Birna Óladóttir, koma báðar fyrir í myndinni.
Kristján Hrannar Pálsson, organisti Grindavíkurkirkju.

Eftirminnilegir tónleikar

Kristján Hrannar Pálsson er organisti Grindavíkurkirkju og kórstjóri kirkjukórsins. Hann hefur tekið þátt í mörgum tónlistarviðburðum í Grindavíkurkirkju en þessi verður honum lengi í minni.

„Það var frábært að geta haldið þessa tónleika hér og þessi lög Sigvalda Kaldalóns eins og Ave Maria og Nóttin var sú ágæt ein, öðluðust nýja dýpt fannst mér. Líka þessir sálmar sem fjalla um hjón á bakinu á asna og eru að leita sér að húsaskjóli á jólanótt, fólk í Grindavík tengir eflaust meira við svona sálma í dag en fyrir 10. nóvember. Þessi lög og sálmar hafa verið sungin margoft hér í kirkjunni en þessi viðburður hér í kvöld sem m.a. var vegna upptöku á tónlist í væntanlegri mynd um Grindavík, bjó til nýja dýpt. Það er alltaf þannig fyrir tónlistarmanninn að þegar verið er að taka upp, vilja allir standa sig fullkomlega og það skilaði sér svo sannarlega hér í kvöld.

Mér fannst líka síðasta lagið sem við fluttum, Þú komst með jólin til mín, öðlast nýja merkingu og tala til fólksins; „Ég trúi því ei hvað allt er nú breytt, í vonlausri villu og brasi á enda, var ævinni eytt.“ Mikið vonleysi en svo kemur vonin eins og oft er í þessum jólalögum. 

Ég er svo ofboðslega stoltur af þessum elsku kór, hvað hann hljómar ótrúlega vel þrátt fyrir að hafa ekki náð að æfa neitt að viti í ár. Þau vippa sér hér upp á svið og syngja fjölradda sálma eins og ekkert væri eðlilegra. Þarna er fólk sem er búið að syngja í 30, 40, 50 ár og er einfaldlega með þetta. Þetta er frábær kirkjukór sem ég er mjög stoltur af,“ sagði Kristján Hrannar. 

Margrét í viðtali á golfvelli Grindvíkinga, Húsatóftavelli.

Myndefni á [email protected]

Margrét var nýlega komin aftur til Íslands þegar blaðamaður tók púlsinn á henni aftur.

„Ég er ennþá að jafna mig á tímamismuninum, það munar átta tímum á LA og Íslandi. Nú fer allt á fullt hjá okkur aftur og stefnum við á að ljúka tökum í maí og þá mun Högni byrja að semja tónlistina. Okkur sárvantar myndefni úr símum frá Grindvíkingum, bæði myndbönd og myndir, frá skjálftunum í aðdraganda rýmingarinnar 10. nóvember og frá rýmingunni sjálfri. Ég veit að fullt af Grindvíkingum náðu þessum ótrúlegu atburðum á símana sína og yrði ég þeim ævinlega þakklát ef hægt er að senda mér efnið á netfangið [email protected]

Komið við hjá Hérastubbi bakara.
Margrét ásamt Fannari bæjarstjóra og aðstoðarkonu sinni, Elísu Gyrðisdóttur.
Margrét ásamt Elísu, og Jenny og Heklu.