HS Orka
HS Orka

Mannlíf

Telur að fjarfundir muni minnka kolefnisspor gríðarlega
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 20. apríl 2020 kl. 08:41

Telur að fjarfundir muni minnka kolefnisspor gríðarlega

Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi hjá Reykjanesbæ, hefur haldið sig heima að mestu en náð að skreppa örsjaldan í golf.

– Hvernig varðir þú páskunum?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ég hef bara verið heima við að mestu, hef þó náð að skreppa örsjaldan í golf þar sem að fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir eru virtar, m.a. búið að setja sand í golfholurnar þannig að kylfingar þurfi ekki að snerta flaggstangirnar. Svo verð ég að hrósa Sjónvarpi Símans fyrir frábæra tónleika með Helga Björnssyni.

– Hvernig páskaegg fékkstu og hver var málshátturinn?

Sambó páskaegg – málshátturinn var: „Farga ei fengnu fé fyrr en annað hreppist.“

– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?

Við á fræðslusviði Reykjanesbæjar fundum alla virka daga klukkan 8.30 í gegnum Microsoft Teams og svo höfum við líka notað Zoom. Allir reikningar á vegum vinnunar eru greiddir í gegnum netið og mjög mikið af venjubundnum störfum er vel hægt að sinna í gegnum þau kerfi sem sveitarfélagið er að nota í venjulegu árferði.

– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?

Ætli það væri ekki Vilhjálmur bróðir minn og við að kryfja golfhringinn.

– Hvernig ertu að upplifa nýjustu tíðindi um að það muni jafnvel taka margar vikur inn í sumarið að aflétta hömlum vegna COVID-19?

Þetta er afar erfið staða sem er kominn upp. Við þurfum öll að standa saman við að vinna okkur upp úr þessu ástandi.

– Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum?

Ég tel að fjarfundir muni aukast gríðarlega sem mun minnka kolefnisspor heimsins verulega!

– Ertu liðtæk/ur í eldhúsinu?

Nei þar er frúin mun sterkari.

– Hvað finnst þér virkilega gott að borða?

Er ekki páskalambið alveg klassískt.

– Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?

Ég er fínn grillari.

– Hvað var bakað síðast á þínu heimili?

Pönnukökur.

– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað myndir þú kaupa í matinn?

1944 klikkar ekki þegar frúin er í vinnunni.

– Hvað hefur gott gerst í vikunni?

Að það eru færri sem að greinast með veiruna.

– Hvað hefur vont gerst í vikunni?

Allt atvinnuleysið.

Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali? Hver er spurningin og svarið við henni?

– Ertu búinn að styrkja Keflavík og Njarðvík í hópsöfnun þeirra á netinu? Að sjálfsögðu.

MARGT FLEIRA Í FJÖLBREYTTUM 76 BLS. VÍKURFRÉTTUM VIKUNNAR