Heklan
Heklan

Fréttir

Ekki komið með lausnir vegna leikskóla og aukins umferðarmagns
Föstudagur 31. janúar 2025 kl. 06:42

Ekki komið með lausnir vegna leikskóla og aukins umferðarmagns

„Ekki hefur verið komið með lausnir vegna leikskóla og alls ekki vegna þess aukna umferðarmagns sem bætist við svæðið. 600 íbúðir verða 1250 íbúðir og mv 1,6 bíl á íbúð eru þetta tæplega 2000 bíla aukning,“ segir í bókun sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, þau Guðbergur Reynisson, Margrét Sanders og Helga Jóhanna Oddsdóttir, lögðu fram á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar vegna breytinga á aðalskipulagi vegna Vatnsness. Vísað var til bókunar í fundargerð bæjarráðs frá 17. ágúst á síðasta ári.

„Umferðar- og samgöngumannvirki Reykjanesbæjar eru löngu sprungin. Okkur er svo sagt að lausnin sé að íbúar og gestir bæjarins eigi að nýta sér alla þá fjölbreyttu samgöngumáta sem í boði eru.

Við hvetjum því meirihlutann bæði til að fara að framkvæma eitthvað af þeim samgöngubótum sem endalaust eru ræddar og fara að standa miklu betur með öllum þessum fjölbreyttu samgöngumátum,“ segja bæjarfulltrúarnir í bókuninni.

Í bókun frá fundargerð bæjarráðs 17. ágúst 2024 segir: „Sjálfstæðisflokkurinn ítrekar áhyggjur sínar varðandi það mikla byggingarmagn sem áætlað er á Vatnsnesinu. Áður en ákvörðun um þessa miklu þéttingu byggðar er tekin væri rétt að skoða hvar börn í því hverfi eigi að sækja grunnskóla, hvar leikskóli eigi að byggjast upp, hvernig umferðamálum verði háttað og hvernig aðrir innviðir bera þessa aukningu á svæðinu, svo ekki sé talað um sjónræn áhrif sem þessi fjöldi stórhýsa hefur. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að framangreind mál verði skoðuð vel áður en farið verður af stað í áætlaðar framkvæmdir.“