Heklan
Heklan

Fréttir

Fólki ráðið frá því að vera í Grindavík að nauðsynjalausu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 30. janúar 2025 kl. 16:47

Fólki ráðið frá því að vera í Grindavík að nauðsynjalausu

Fólki er ráðið frá því að vera á ferðinni í Grindavík að nauðsynjalausu. Í Grindvík sé áhætta há fyrir alla hópa, bæði á nóttu sem degi. Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglustjórans á Suðurnesjum sem vitnar í niðurstöður úr áhættumati framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavík í samvinnu við ríkislögreglustjóra.

Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir undir Svartsengi eru auknar líkur á eldgosi.  Ekki er víst að jarðskjálftavirkni verði mikil fyrir næsta eldgos.  Veðurstofan uppfærði hættumat fyrir svæðið  þann 28. janúar og breytti því úr Hættumatið gildir að öllu óbreyttu til 11. febrúar nk. og felur í sér markverðar breytingar. Veðurstofan uppfærði hættumat fyrir svæðið 28. jan. sl. Í af óvissustigi í hættustig. Hættumatið gildir að öllu óbreyttu til 11. febrúar nk. og felur í sér markverðar breytingar.

,,Á grundvelli áhættumats verkfræðistofunnar Örugg, sem m.a. tekur tillit til hættumats Veðurstofunnar og þeirra varna sem eru til staðar og unnið er sífellt að, er það niðurstaða Framkvæmdanefndarinnar og Almannavarnadeildar að áhætta allra aðila sé há, sem þýðir að varnir gegn hættum séu til staðar en talsverð óvissa. Því er fólki ráðið frá því að vera á ferðinni í Grindavík að nauðsynjalausu.“