Heklan
Heklan

Fréttir

Íbúar keyptu sér íbúðir með það í huga að grænt svæði yrði til staðar
Þriðjudagur 28. janúar 2025 kl. 11:18

Íbúar keyptu sér íbúðir með það í huga að grænt svæði yrði til staðar

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að senda til Skipulagsstofnunar til endanlegrar afgreiðslu aðalskipulagsbreytingu fyrir Dalshverfi í Innri Njarðvík. Um er að ræða svæði umhverfis Stapaskóla. Samkvæmt breytingunni er íbúðum í sérbýli fjölgað um 30 og heildarfjöldi hverfisins leiðréttur. Tillaga á breytingu deiliskipulags fyrir Dalshverfi 1. og 2. áfanga er kynnt samtímis.

Deiliskipulag er í auglýsingu fyrir svæðið þar sem tekið hefur verið tillit til hluta þeirra athugasemda sem fram hafa komið, auk þess sem verslunar- og þjónustusvæði eru skipulögð með það að markmiði að fjölbreyttari þjónusta verði í boði fyrir íbúa hverfisins. Athugasemdafrestur fyrir deiliskipulagið er til 9. mars og umhverfis- og skipulagsráð mun halda íbúafund um deiliskipulagið í febrúarmánuði.


Gunnar Felix Rúnarsson, bæjarfulltrúi Umbótar, sat hjá við afgreiðslu ráðsins og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Umbót hefur þegar lýst yfir andstöðu við þéttingu byggðar í bókun frá 17. desember 2024 á bæjarstjórnarfundi, þar sem við teljum mikilvægt að hafa virkt samráð við íbúa þegar kemur að breytingum á aðalskipulagi. Samtal íbúa og bæjaryfirvalda þarf að vera gefandi og virkt, þar sem gott skipulag íbúðabyggðar hefur áhrif á andlega og líkamlega lýðheilsu bæjarbúa. Ekki má gleyma því að þessir íbúar keyptu sér íbúðir með það í huga að grænt svæði yrði til staðar og byggðin þéttist ekki um of. Mikilvægt er að breytingar á skipulagi séu unnar í samráði við íbúana og íbúakosning verði haldin til að tryggja að hagsmunir þeirra séu hafðir að leiðarljósi.“