Lögreglustjóri áréttar að áhætta er há í Grindavík
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum áréttar að í Grindavík er áhætta há fyrir alla hópa, bæði að nóttu sem degi. Á Svartsengissvæðinu er áhætta talin há, bæði að nóttu sem degi. Á gos-/sprengisvæði er áhættan hins vegar óásættanleg fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, ytri aðila og ferðafólk. Mælt er gegn því að óviðkomandi fari inn á gos- og sprengisvæði.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað í gær þann 30. janúar 2025 að færa almannavarnastig af óvissustigi á hættustig.
Miðað við núverandi áhættumat frá 29. janúar er nú er talið að áhætta á þéttbýlissvæði Grindavíkur sé há fyrir alla aðila sem þýðir að varnir gegn hættum séu til staðar en talsverð óvissa ríkir í einstaka þáttum. Fólki er ráðið frá því að vera á ferðinni í Grindavík að nauðsynjalausu.
Í niðurstöðum úr áhættumati framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra segir:
„Á grundvelli áhættumats verkfræðistofunnar Örugg, sem m.a. tekur tillit til hættumats Veðurstofunnar og þeirra varna sem eru til staðar og unnið er sífellt að, er það niðurstaða Framkvæmdanefndarinnar og Almannavarnadeildar að áhætta allra aðila sé há, sem þýðir að varnir gegn hættum séu til staðar en talsverð óvissa. Því er fólki ráðið frá því að vera á ferðinni í Grindavík að nauðsynjalausu.
Áhættumat verkfræðistofunnar Örugg er unnið fyrir þrjú svæði, þ.e. 1) gossvæði/sprengisvæði, 2) Svartsengi og 3) Grindavík (þéttbýli). Matið er unnið fyrir fjóra hópa, þ.e. 1) viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, 2) íbúa, 3) fyrirtæki og 4) ytri aðila og ferðamenn.
Í Grindavík er áhætta há fyrir alla hópa, bæði að nóttu sem degi.
Á Svartsengissvæðinu er áhætta talin há, bæði að nóttu sem degi.
Á gos-/sprengisvæði er áhættan hins vegar óásættanleg fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, ytri aðila og ferðafólk. Mælt er gegn því að óviðkomandi fari inn á gos- og sprengisvæði.
Farið er í eftirlitsferðir hvern morgun, og yfir daginn, til að kanna hvort einhverjar varnir hafi gefið sig og gert við lokanir þar sem þess kann að gerast þörf.
Áhættumatið gildir þar til nýtt áhættumat er gefið út.“
Veður getur haft áhrif á næmni mælanetsins og þannig stytt viðbragðstíma vegna eldgoss
Ríkislögreglustjóri telur vert að benda á að samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar er von á umhleypingum, sunnan stormi með afgerandi hlýindum, rigningu og súld á sunnan- og vestanverðu landinu þegar líður á vikuna og um helgina. Slæm veðurspá gæti dregið úr næmni mælanetsins og þannig stytt viðbragðstíma vegna eldgoss. Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að fara á hættustig Almannavarna þar sem líkur á nýju eldgosi á Sundhnúksgígjaröðinni hefur aukist.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem fór þaðan í síðasta eldgosi. Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni hefur aukist hægt frá goslokum 9. desember 2024 en virknin er enn lítil. Þróunin síðasta árið sýnir að jarðskjálftavirkni fyrir kvikuhlaup hefur farið minnkandi með hverjum atburði. Því er möguleiki á að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta eldgos.
Atburðarrásin heldur því áfram á svipaðan hátt og fyrir síðustu gos.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum að hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Það sama gildir um ferðamenn. Hættur eru nú taldar töluverðar af áhrifum eldgoss í Grindavík. Vont veður og slæm færð dregur úr öryggi fólks inn á hættusvæðum jafnframt því að hafa áhrif á vöktunargetu Veðurstofu Íslands.