Unnið að gerð framtíðarsviðsmynda um Grindavík
Vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga hafa stjórnvöld á liðnum misserum gripið til umfangsmikilla ráðstafana til þess að tryggja öryggi almennings og verja og tryggja virkni mikilvægra innviða. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.
Má þar helst nefna að mikill meirihluti íbúðarhúsa í Grindavík hefur verið keyptur af íbúum og margvíslegur húsnæðis- og fjárhagsstuðningur veittur til að tryggja sem best fjárhagslegt öryggi fólks á miklum óvissutímum. Bygging varnargarða gegn hraunflæði sem ógnar byggð og innviðum. Ýmis greiningarvinna til þess að styrkja viðnámsþrótt og viðbragðsgetu samfélags sem ógn steðjar að. Sérstök framkvæmdanefnd stofnuð um málefni Grindavíkur til að fara með stjórn og samhæfingu aðgerða.
Verkefnum stjórnvalda vegna náttúruvár á Reykjanesskaga er hvergi nærri lokið og fyrirséð að þau muni taka mörg ár enn eða áratugi. Ríkisstjórnin hefur fjallað um ýmis mál tengd Grindavík og öryggi á Reykjanesskaga á fundum sínum og haldið fund í ráðherranefnd um málefni Grindavíkur.
Að loknum ráðherranefndarfundi þann 14. janúar sl. fól forsætisráðherra stýrihópi ráðuneytisstjóra í málefnum Grindavíkur að undirbúa frekari stefnumótun ríkisins fyrir ráðherranefnd. Hún felur m.a. í sér viðhorfskönnun meðal þeirra sem bjuggu í Grindavík við upphaf hamfaranna. Mat á þörf fyrir frekari úrræði fyrir einstaklinga og fyrirtæki og gerð sviðsmynda um framtíð Grindavíkur.
Þýskir sérfræðingar ráðgjafafyrirtækisins Deloitte koma að gerð sviðsmynda í samvinnu við stýrihóp ráðuneytisstjóra og ýmsa aðila í ráðuneytum, stofnunum og hjá Grindavíkurbæ.
Sviðsmyndagreining er gagnadrifin aðferðafræði sem nýtt er til að sjá betur fyrir sér mögulega framtíð við ófyrirsjáanlegar aðstæður. Á slíkum grundvelli verða ákvarðanir markvissari og líklegri til þess að skila betri árangri. Stefnt er að því að niðurstöður verði kynntar um miðjan mars.