Nafn mannsins sem saknað er
Sjómaðurinn sem saknað er af línuskipinu Sighvati GK 57 heitir Ekasit Thasaphong. Hann er fæddur 1980. Hann kom ungur til Íslands og hefur búið í Grindavík ásamt eiginkonu og þremur börnum. Ekasit hefur lengst af starfað hjá Vísi hf, bæði til sjós og lands. Fjölskyldan öll hefur verið mjög virk í samfélaginu í Grindavík, sem er harmi slegið.
Tilkynning þessi er send fjölmiðlum að höfðu samráði við fjölskylduna, sem þakkar af alhug samúð og vinarþel samfélagsins.
Starfsfólk Vísis hf. þakkar öllum þeim, sem tekið hafa þátt í leitinni, bænir allra eru hjá fjölskyldu og ættingjum Ekasit Thasaphong.