Neyðarkyndistöðvar settar upp í Rockville og við Fitjar
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur heimilað uppsetningu neyðarkyndistöðvar á Fitjum í Reykjanesbæ með fyrirvara um samþykki landeigenda að stofnuð sé lóð undir umrædda starfsemi. Starfsemin verði tímabundin til þriggja ára frá útgáfu byggingarleyfis. Að þeim tíma liðnum verði ákvörðun endurskoðuð með tilliti til aðstæðna. Þá tekur ráðið undir nauðsyn neyðarkyndistöðvar út frá almannahagsmunum.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, almannavarnir, HS Orka og HS Veitur lögðu fram erindi þann 16. janúar 2025 til bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ varðandi neyðarkyndistöð. Þar sem ástand á afhendingu á heitu vatni á Reykjanesinu er í óvissu á meðan eldsumbrot halda áfram nærri Svartsengi og innviðum þar á svæðinu hafa almannavarnir og umhverfisráðuneyti lagt á það kapp að tryggja afhendingu á heitu vatni ef rof verður á afhendingu frá Svartsengi. Liður í því er að setja upp neyðarkyndistöðvar við Rockville og einnig er horft til þess að setja upp sambærilegan búnað nálægt Fitjum. Búið er að leigja búnað fyrir Rockville og einnig eitt sett af búnaði til að staðsetja við Fitjar.
Eitt sett af búnaði samanstendur af u.þ.b. þremur til fjórum 40 feta gámum og u.þ.b. einum til tveimur 20 feta gámum. Í hvert sett þarf svo að tengja kalt vatn, rafmagn, tengja í fráveitu og tengja við hitaveitulögn. Allur þessi búnaður sem um ræðir er færanlegur og ekki gert ráð fyrir að standi þarna varanlega að öllu leyti.