Heklan
Heklan

Íþróttir

Almar Viktor er íþróttamaður Suðurnesjabæjar
Aksturíþróttamaðurinn Almar Viktor Þórólfsson hlaut titilinn íþróttamaðurinn árins 2024 í Suðurnesjabæ. VF/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 31. janúar 2025 kl. 09:55

Almar Viktor er íþróttamaður Suðurnesjabæjar

Val á íþróttamanni ársins í Suðurnesjabæ var kynnt í Tónlistarskólanum í Garði í gær, 30. janúar. Sjö íþróttamenn vorur tilnefndir en það var akstursíþróttamaðurinn Almar Viktor Þórólfsson sem hlaut titilinn íþróttamaður Suðurnesjabæjar árið 2024.

Við sama tilefni var viðurkenning fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþrótta- og tómstundamála veitt en það var Oddur Jónsson sem hlaut þá viðurkenningu. Oddur hefur starfað sem sjálfboðaliði í Björgunarsveitinni Ægi í Garði í heil 40 ár og sinnt þar fjölbreyttum hlutverkum af mikilli elju og fórnfýsi. Oddur Jónsson er einstök fyrirmynd sjálfboðaliða, og með framlagi sínu hefur hann haft mótandi áhrif á starf sveitarinnar og samferðafólk sitt.

Sjálfboðaliði ársins, Oddur Jónsson.

Magnús Stefánsson, bæjarstjóri, bauð gesti velkomna og flutti ávarp þar sem hann fagnaði því efnilega íþróttafólki sem býr í Suðurnesjabæ og lagði áherslu á mikilvægi þátttöku í íþróttum- og tómstundum. Svavar Grétarsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs, afhenti verðlaunin sem og viðurkenningar til þeirra sem hlutu tilnefningar til íþróttamanns ársins 2024.

Í tilefni af kjöri íþróttamanns ársins var boðið upp á tvö tónlistaratriði frá tónlistarskólum bæjarins, ungir og upprennandi tónlistarmenn stigu á stokk og gerðu athöfnina enn eftirminnilegri.

Aleksander Cielesz lék listavel á píanó.
Magnús Máni Guðnason spilaði á gítar og söng.

Aksturíþróttamaðurinn Almar Viktor Þórólfsson hlaut titilinn íþróttamaðurinn árins 2024 í Suðurnesjabæ. Almar varð Íslandsmeistari í AB-varahlutaflokki rallýs 2024. Hann hefur keppt sem ökumaður síðan 2017 og tryggði sér titilinn með hámarksstigum í þremur af fjórum keppnum ársins. Auk árangurs í rallý er hann þekktur fyrir aðstoð við aðra keppendur, hvort sem það er viðgerðir eða að lána búnað þannig keppinautar geta haldið sér í keppni. Hann er hvetjandi og hjálpsamur, góður liðsmaður.

Eftirfarandi íþróttamenn voru hlutu einnig tilnefningu og  viðurkenningu fyrir góðan árangur árið 2024:

Ástvaldur Ragnar Bjarnason, boccia
Daníel Arnar Ragnarsson Viborg, taekwondo
Orfeus Andreoues, handknattleikur
Sigurður Guðmundsson, golf
Sindri Lars Ómarsson, knattspyrna
Salóme Kristín Róbertsdóttir, knattspyrna

Þessi árlegi viðburður tókst afar vel og undirstrikaði mikilvægi þess að heiðra afrek, eldmóð og samfélagslega þátttöku. Hann var ekki einungis tilefni til að fagna árangri liðins árs, heldur einnig hvatning fyrir íþróttafólk okkar til að hefja nýtt og spennandi íþróttaár með auknum metnaði.

Íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2024