Íþróttir

Körfuboltalið Grindavíkur æfa í Kópavogi
Tanja Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Breiðabliks, Ásgeir Baldurs, formaður stjórnar Breiðabliks, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Þorleifur Ólafsson, framkvæmdastjóri UMFG, Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, og Klara Bjarnadóttir, formaður UMFG. Mynd/Kópavogsbær
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 16. september 2024 kl. 12:46

Körfuboltalið Grindavíkur æfa í Kópavogi

Meistaraflokkar Grindavíkur í körfubolta karla og kvenna fá æfingaaðstöðu í íþróttahúsi Kársnesskóla í vetur. Ásdís Kristjánsdóttir og Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, undirrituðu samning um efnið í síðustu viku að viðstöddum fulltrúum Breiðabliks og Ungmennafélags Grindavíkur, UMFG.

Verið er að endurnýja gólfefni í íþróttahúsinu og lýkur þeim framkvæmdum í lok september. Húsið mun í kjölfarið nýtast fyrir körfuknattleiksdeildir Breiðabliks, Grindavíkur og nemendur Kársnesskóla.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Körfuknattleiksdeild Grindavík hefur haft æfingaaðstöðu í Kópavogi frá síðasta vetri og spilað meistaraflokksleiki karla og kvenna í Smáranum í samstarfi við Breiðablik.

„Það hefur verið einstök ánægja að geta liðsinnt Grindvíkingum á krefjandi tímum og góður andi sem hefur fylgt liðinu og stuðningsfólki þess. Grindvíkingar eru alltaf velkomnir í Kópavog,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri.

„Við hjá Ungmennafélagi Grindavíkur erum einstaklega þakklát Kópavogsbæ og Breiðablik að búið sé að skrifa undir samstarfssamning. En báðir þessir aðilar eiga miklar þakkir skildar fyrir hlýjar og góðar móttökur frá því ósköpin skullu á í nóvember á síðasta ári og það er þeim að þakka að Grindvíkingar gátu sameinast á ný, í gleði og sorg á nýjum heimavelli,“ segir Klara Bjarnadóttir, formaður UMFG.


Frétt: Grindavík.is