80 ára afmælistónleikar Rúnna Júl fluttir í Stapa
Rúnar Júlíusson, Herra Rokk, hefði orðið 80 ára þann 13. apríl 2025. Af því tilefni munu synir hans heiðra minningu Rúnars Júlíussonar með tónleikum í Stapa á afmælisdaginn, 13. apríl kl. 20:00. Upphaflega áttu þeir að vera í Bergi en vegna mikillar eftirspurnar hafa þeir verið færðir í Stapa.
Í kynningu á viðburðinum segir að þar verði ógleymanleg kvöldstund þar sem ferill rokkskáldsins verður rakinn með tónlist og fleygum sögum af Rúnari og samferðarmönnum hans. Ekkert verður dregið undan í frásögnum og flutningi þar sem hinar ýmsu hliðar eins mesta töffara íslenskrar rokksögu verða kynntar á einlægan og hreinskiptinn hátt.
Einvala lið hljóðfæraleikara munu verða bræðrunum, Baldri og Júlíusi, til stuðnings á þessum tónleikum sem munu örugglega ekki klikka.
Miðasala er á tix.is