Dagur tónlistarskólans og Hljómanótt
Tónlistarskólar landsins eru um 90 talsins og standa fyrir fjölbreyttu og öflugu skólastarfi. Hátíðisdagur þeirra, „Dagur tónlistarskólans“, er haldinn 7. febrúar ár hvert. Þann dag fæddist Gylfi Þ. Gíslason sem var menntamálaráðherra frá 1956 til 1971 en hann hefur gjarnan verið kallaður „faðir íslenskra tónlistarskóla“.
Gylfi kom því í gegn á ráðherratíð sinni að sveitarfélög sem hefðu hug á því að stofna tónlistarskóla fengju til þess styrk úr ríkissjóði sem næmi 25% af launakostnaði. Síðar var hann aðalhvatamaðurinn að því að launaframlag ríkisins var aukið í 50% sem varð sveitarfélögum enn meiri hvatning til að stofna tónlistarskóla og þá fjölgaði þeim umtalsvert. Íslenskt tónlistarlíf og -menntun mun alla tíð búa að framsýni Gylfa Þ. Gíslasonar og áhuga hans á aukinni, markvissri tónlistarmenntun þjóðarinnar.
Í tilefni af Degi tónlistarskólanna hafa íslenskir tónlistarskólar efnt til ýmis konar viðburða og/eða kynninga í gegn um tíðina með það að markmiði að auka sýnileika og styrkja tengsl við nærsamfélagið. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar hefur ekki verið eftirbátur annarra í því og hefur alla tíð haldið þessum degi á lofti.
Föstudaginn 7. febrúar, á „Degi tónlistarskólans“, efna nokkrir tónlistarskólar á suðvesturhorninu, m.a. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og Tónlistarskólinn í Garði, til svokallaðrar Hljómanætur sem rytmískrar deildir skólanna standa fyrir. Að þessu sinni verður Hljómanótt haldin í Garðaskóla í Garðabæ. Þá sameinast nemendur og æfa saman í hljómsveitum undir handleiðslu kennara deildanna. Dagskrá Hljómanætur lýkur svo með tónleikum á miðnætti. Sérstakir gestir verða Una Torfa og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir sem munu vinna sérstaklega með nemendum.
Hljóðfærakynning fyrir Forskóla 2 og kaffisala Strengjasveitarinnar
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar efnir til hinnar árlegu hljóðfærakynningar fyrir nemendur Forskóla 2 laugardaginn 8. febrúar nk. Nemendur í Forskóla 2 eru öll börn í Reykjanesbæ í öðrum bekk grunnskólanna. Dagskráin hefst kl. 10:30 í Stapa, Hljómahöll, með stuttum tónleikum forskólanemendanna þar sem þeir flytja tvö hressileg lög við undirleik kennarahljómsveitar Tónlistarskólans. Að tónleikunum loknum fá nemendurnir kynningar í stofum Tónlistarskólans á þeim hljóðfærum sem hæfa ungum börnum að hefja nám á að loknu forskólanáminu. Það verða kennarar skólans sem sjá um kynningarnar ásamt nokkrum nemendum. Nemendur forskólans fá að handleika og prófa hljóðfærin og munu tónlistarkennararnir leiðbeina þeim við það. Hljóðfærakynningunni, og þar með dagskránni, lýkur kl.12:15.
Lúðrasveit TR mun leika nokkur lög og foreldrafélag Strengjasveitar TR verður með vöfflu- og kaffisölu meðan á hljóðfærakynningunni stendur en það er fjáröflun vegna tónleikaferðar Strengjasveitarinnar til Danmerkur og Svíþjóðar sem farin verður í maí nk.