Heklan
Heklan

Mannlíf

Gunnar Ingi gefur út lag með Móeiði Júníusdóttur
Móeiður Júníusdóttir, söngkona.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 31. janúar 2025 kl. 07:00

Gunnar Ingi gefur út lag með Móeiði Júníusdóttur

Keflvíski bassaleikarinn og lagahöfundurinn Gunnar Ingi Guðmundsson er afkastamikill tónlistarmaður en í dag gefur hann út nýtt lag og fékk hina þekktu söngkonu, Móeiði Júníusdóttur, til að syngja lagið sem ber heitið Crazy Lover. Upptökustjórn var í höndum Stefáns Arnars Gunnlaugssonar.

Móeiður eða Móa eins og hún er oftast kölluð var mjög virk í tónlistarsenunni um og fyrir aldamótin 2000, bæði hérlendis og erlendis. Hún gaf m.a út jazzplötu, rafskotið popp með hljómsveitinni Bong og sólóplötuna Universal undir merkjum hins goðsagnakennda bandaríska útgáfufyrirtækis, Tommy Boy.

Móa sneri sér svo aftur að tónlistinni eftir nokkuð langt hlé og hefur sent frá sér eigin lög og tekið þátt í samstarfsverkefnum undanfarin ár. Hún tók þátt í forkeppni söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2023 með lagið Glötuð ást.

Gunnar Ingi Guðmundsson.

Gunnar Ingi Guðmundsson er bassaleikari og lagahöfundur, hann hefur víða komið við í tónsköpun sinni og hefur samið mörg lög fyrir hina ýmsu flytjendur hérlendis. Þá hefur Gunnar tekið þátt í nokkrum lagasmíðavinnubúðum bæði hér heima sem og erlendis og er í dag mjög virkur lagahöfundur og tónskáld. Gunnar hefur gert tvær sólóplötur og eina jólaplötu sem heitir Með Jólin í hjarta mér, með Rakel Pálsdóttir söngkonu en platan var plata vikunar á Rás 2 í desember 2022 og hlaut mjög góðar viðtökur.

Gunnar Ingi er höfundur lagsins.

„Ég átti til prufuupptöku eða demo eins og það er oftast kallað og ákvað að setja sig í samband við Móeiði og athuga hvort að hún myndi vilja synja lagið. Hún var til í það og þá var lagið sent til Nínu Richter fyrir textaskrif og var útkoman lagið Crazy Lover sem er í seiðandi retro cinematic stíl með smá rafskotnu ívafi og fjallar lagið um ástarsamband sem er á köflum eitrað. 

Lagið var fyrst til sem eitt lítið intro og vers og svo með tímanum reyndi ég að semja við það fleiri kafla sem myndu mynda eina heild sem lag og komu þeir kaflar koll af kolli á nokkra vikna tímabili og er engin sérstakur innblástur við gerð þessa lags heldur bara einhverskonar spuni með hljóma og laglínugerð,“ segir Gunnar Ingi. 

Nína Richter, textahöfundur.

Nína Richter er höfundur textans. 

„Sungið er um þráhyggjuna sem skapast gagnvart viðkomandi, að enginn nema þessi eini geti mætt þránni. Síðan fjallar textinn um þessa vímu, dýpið þar sem fólk er sokkið svo djúpt ofan í tilfinningarnar að það sér ekki lengur myrkrið, eða fer jafnvel að gangast myrkrinu sjálfviljugt á hönd. Sögumaður veit að hann er blindaður en eltir samt ástina áfram veginn, sem er einmitt titill lagsins. Þetta er svona sjálfskaðandi hegðun. Í lokaerindi reynir ljóðmælandi síðan að sannfæra viðmælandann um að enginn geti elskað hann eins og hann, sem speglar fyrsta erindið. Sem er ætlað að endurspegla þessa haltu mér, slepptu mér, óheilbrigðu valdadýnamík sem skapast í svona samböndum þar sem enginn er öruggur heldur er það þessi spenna og óvissa sem viðheldur neistanum segir Nína Richter um gerð textans.

Lagið er svo að finna á öllum helstu streymisveitum Spotify, Apple music og YouTube og fylgja tenglar á lagið, bæði á Spotify og Youtube, með hér í spilaranum.

Lag á Spotify: Myndband á Youtube: