Heklan
Heklan

Mannlíf

Ungmenni vikunnar: Vildi geta flogið
Föstudagur 31. janúar 2025 kl. 06:52

Ungmenni vikunnar: Vildi geta flogið

Nafn: Birta Rós Árnadóttir
Aldur: 15 ára
Bekkur og skóli: Njarðvíkurskóli 10. Þ.B.I.
Áhugamál: Dans, söngleikir, sálfræði, förðun, trúarbragðafræði, skautar, danskennsla barna og dýrafræði. 

Hvert er skemmtilegasta fagið? Náttúrufræði.

Hver í skólanum þínum er líklegur til að verða frægur og hvers vegna? Líklegust tel ég vera Helga Jara fyrir að vera körfuboltastjarna. Vegna þess að hún er geggjuð í körfubolta.

Skemmtilegasta saga úr skólanum: Þegar ágætlega stórir jarðskjálftar komu fyrir í Grunnskóla Grindavíkur og samnemendur og kennarar mínir blikkuðu ekki einu sinni.

Hver er fyndnastur í skólanum? Íris Björt, hún er með samt með svartan húmor.

Hvert er uppáhaldslagið þitt? Beautiful  boy með John Lennon.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? TACOOOO.

Hver er uppáhaldsbíómyndin þín? Me Before You. Það þarf alltaf allavega einn tissjú pakka fyrir áhorf þessara mynda.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju og hvers vegna? Handklæði, til að þurrka af mér eftir að hafað fengið mér sundsprett. Sundföt, auðvitað og heilt bókasafn.

Hver er þinn helsti kostur? Ég myndi telja minn helsta kost vera bjartsýni.

Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að vera með restina af ævinni, hvað myndir þú velja? Ég myndi velja flug. Þá gæti ég farið til hvaða landa sem er fyrir ekki eina einustu krónu.

Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks? Best finnst mér kurteisi, það tel ég vera mikilvægast í mannlegum samskiptum.

Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla? Mig langar til þess að fara í framhaldskóla á náttúrufræðibraut. Síðan læra dýralæknafræði eða sálfræði samhliða því að kenna dans.

Stundar þú íþróttir eða aðrar tómstundir? Já, Ég stunda dans og ekkert fleira þar sem ég hef ekki tíma fyrir neitt annað.

Ef þú ættir að lýsa sjálfri þér í einu orði hvaða orð væri það? Björt.