Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn

Viðskipti

Bílastæði fyllast hratt yfir sumartímabilið á Keflavíkurflugvelli
Miðvikudagur 19. júní 2024 kl. 10:12

Bílastæði fyllast hratt yfir sumartímabilið á Keflavíkurflugvelli

Bílastæði við Keflavíkurflugvöll (KEF) verða vel nýtt í sumar. Þau sem hyggjast leggja leið sína í gegnum flugvöllinn í júní, júlí og ágúst eru hvött til að bóka bílastæði við flugstöðina fyrir fram til að tryggja bílnum stæði. Því fyrr sem stæðið er bókað því betri kjör fást. 

Mikill fjöldi gesta yfir sumarið

Viðreisn
Viðreisn

Gestir eru hvattir til að mæta snemma fyrir flug í sumar þar sem töluverð umferð verður um flugvöllinn. Farþegaspá KEF áætlar að samtals muni 8,5 milljónir gesta fara um völlinn á árinu og að árið í ár verði það þriðja stærsta í sögu flugvallarins.

Yfir 60 sjálfsafgreiðslustöðvar eru víðs vegar í flugstöðinni sem gestir eru hvattir til að nota til að innrita sig fyrir flug. Með þessu geta gestir notið ferðalagsins og þess sem flugvöllurinn hefur upp á að bjóða í verslun og veitingum frekar en að bíða í röð. Opnað er fyrir innritun í flug kl. 03:45 að morgni og öryggisleit er opnuð kl. 04:00.

Aldrei verið þægilegra að leggja

Nýtt bílastæðakerfi var tekið í notkun síðasta sumar sem eykur þægindi gesta við aðkomu á flugvöllinn. Bókunarferlið er enn það sama og áður en bílastæðið er áfram bókað á vefsíðu KEF.

Nýja bílastæðakerfið virkar þannig að ekið er inn og út af bílastæðunum, hliðin opnast sjálfkrafa og myndavél tekur mynd af bílnúmerinu. Ekki er lengur þörf á að taka miða, skanna QR-kóða eða nota greiðslukort til að opna hliðin á bílastæðunum. 

Forðist aukinn kostnað

Til að tryggja bílnum stæði og fá hagstæðasta verðið er hægt að bóka það á vefsíðu KEF. Því fyrr sem stæðið er bókað, því betri kjör fást. 

Aðrar greiðsluleiðir í boði fyrir gesti eru með bílastæðaforritum, Autopay og Parka, auk þess sem sjálfsafgreiðslukassar eru áfram til staðar inni í flugstöð. Ef engin þessara greiðsluleiða er notuð kemur reikningur samkvæmt gjaldskrá í heimabanka bílaeigenda, að viðbættu 1.490 króna þjónustugjaldi. Hægt er að forðast þjónustugjaldið með því að greiða fyrir stæðið með bílastæðaappi allt að 48 klukkustundum eftir að bílastæðið er yfirgefið.

Fjölbreyttir samgöngumátar

Auk bílastæðaþjónustu KEF standa gestum til boða aðrar samgönguleiðir til og frá flugvellinum. Þar má nefna ferðir með rútum, bílaleigubílum, leigubílum eða strætisvögnum, segir í tilkynningu frá Isavia.