Optical Studio
Optical Studio

Fréttir

Næsta eldgos gæti orðið nær Grindavíkurbæ
Þriðjudagur 16. júlí 2024 kl. 17:23

Næsta eldgos gæti orðið nær Grindavíkurbæ

Kvikusöfnun undir Svartsengi hefur haldist nokkuð stöðug síðustu vikur. Líkanreikningar áætla að um 13 milljónir rúmmetrar af kviku hafi bæst við í kvikuhólfið undir Svartsengi frá því að kvika hljóp þaðan síðast í Sundhnúksgígaröðina og eldgosið 29. maí hófst. Í dag er magn kviku sem bæst hefur við komið að lægri mörkum þess magns kviku sem talið er þurfa að bætast við til að koma af stað nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi. Efri mörkin liggja í kringum 19 milljónir rúmmetra af kviku. Líkur eru taldar á því að næsta eldgos muni koma upp nær Grindavík en síðustu eldgos.

Ef gert er ráð fyrir því að á bilinu 13 til 19 milljónir rúmmetra af kviku þurfi að bætast við undir Svartsengi til að byggja upp nægan þrýsting til að koma af stað nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi, benda ný líkön til þess að mjög miklar líkur eru á því að það eigi sér stað á næstu þremur vikum.

Áður hefur þó verið bent á að reynslan frá Kröflueldum sýni að eftir því sem kvikuhlaupum fjölgar þarf meira magn kviku og þar með meiri þrýsting til að koma þeim af stað. Ef miðað er við að um 20 milljón rúmmetrar þurfi að safnast fyrir, líkt og sást fyrir eldgosið 29. maí, mun það magn nást á næstu þremur til fjórum vikum. Þetta er byggt á því að innstreymi kviku inn í kvikuhólfið undir Svarstengi haldist óbreytt frá því sem nú er.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024
Uppfært hættumat

Nýjustu greiningar á því hvernig staðsetning gosopnunar hefur þróast í síðustu eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni benda til þess að gosvirknin færist sunnar og nær Grindavík með hverjum atburði. Með hliðsjón af þessum greiningum og ef tekið er tillit til þess að frá því í nóvember 2023 hafa jarðhræringarnar valdið umtalsverðum sprunguhreyfingum innan Grindavíkur, er hætta vegna gosopnunar, hraunflæðis og gasmengunar nú metin sem „töluverð“, en var áður metin „nokkur“ innan svæðis 4. Þetta er sambærilegt mati á þessari hættu innan svæðis 3.

Þessar breytingar á einstaka hættum innan svæða 3 og 4 hafa á þessu stigi ekki áhrif á heildarmat á hættu innan þeirra.

Hættumatið gildir til 23. júlí 2024, að öllu óbreyttu, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.