Ríflega 32 tíma aðgerð til bjargar Jóhönnu Gísladóttur GK
Snemma í morgun kom Vörður II, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Patreksfirði, til hafnar með Jóhönnu Gísladóttur GK í togi og skilaði Jóhönnu að bryggju rétt fyrir klukkan 6 í morgun.
Þá voru liðnir um 32 klukkustundir síðan Jóhanna Gísladóttir GK fékk pokann í skrúfuna um 70 sjómílur norðvestur af Látrabjargi og varð fyrir vikið óstjórnhæf.
Strax þá kvöldið, 12. febrúar, hófst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar handa við að skipuleggja björgun Jóhönnu og drátt á skipinu til lands. Varðskipinu Þór, sem þá var statt austan við land, var stefnt í átt að Jóhönnu, ásamt því að áhöfnum björgunarskipa Landsbjargar á Rifi og Patreksfirði var gert viðvart.
Skipstjóri Guðmundar í Nesi, sem var á veiðum ekki langt frá Jóhönnu, ákvað að draga veiðarfæri sín og halda til aðstoðar. Þetta var skömmu fyrir miðnætti, aðfararnótt 13. febrúar. Klukkan 4 um þá nótt var áhöfn Guðmundar í Nesi búin að koma taug á milli skipanna og skipin komin á hæga siglingu í litlum sjó en strekkings vindi, áleiðis til lands. Hraði skipanna í þessum drætti var frekar lítill eða um tvær og hálf til þrjár og hálf sjómíla á klukkustund.
Það var svo rúmlega eitt í nótt, aðfaranótt 14. febrúar, sem áhöfn Varðar II var ræst út og haldið til móts við skipin, sem þá voru að nálgast mynni Patreksfjarðar.
Vörður II tók við drætti Jóhönnu rétt upp úr 2 í nótt og hélt þá Guðmundur í Nesi aftur til veiða.
Vörður kom svo eins og fyrr segir með Jóhönnu til hafnar á Patreksfirði snemma í morgun, rétt um einum og hálfum sólarhring síðar.